ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Blóðugt á blankheitatímum ...

09:50 › 11. febrúar 2009

Tölvan mín heima er sýkt af leiðindavírusi og hreinlega slekkur á sér ef ég reyni að nota hana eitthvað af viti. Upp kemur viðvörun um að ég verði að kaupa vírusvörn af MS Spy Protect Alert 2009-eitthvað svoleiðis. Þessi þykjustuvírusvörn er bara viðbjóður, passið ykkur! Þrátt fyrir að hafa hlaðið niður nýrri og sterkri alvöruvírusvörn í gær, látið hana skanna tölvuna í 3 klukkutíma og eyða síðan öllu sýktu lætur helvítis fíflið (vírusinn) ekki segjast. Garggg.

Ásta verður í fríi núna næstu vikurnar
 svo að ég hef fest kaup á strætókorti, græna kortinu sem dugir í fjórar vikur. Fékk aðstoð elsku hjartans Maríu minnar í Skrúðgarðinum við það. Hún hjálpaði mér við þetta, þar sem tölvan mín lætur svona illa, og studdi mig andlega þegar ég mátti horfa á á tólfta þúsund krónur hverfa af Visakortinu. Rosalega var það blóðugt á þessum miklu blankheitatímum hjá öllum. Samt keypti ég allra, allra ódýrasta kortið (með bara 100% fargjaldahækkun) en það tekur viku að útbúa það þótt ég þurfi að nota það STRAX. Það hefði kostað nokkrum þúsundköllum meira að fá ópersónulegt kort sem erfðaprinsinn hefði getað notað líka. Það verður mynd af mér á þessu persónulega korti og sannarlega gaman að sjá hræðslusvipinn á bílstjórunum þegar kortið verður komið í hendurnar á mér. Ég myndast yfirleitt eins og vélsagarmorðingi! Mjög líklega get ég kúgað þá til að keyra beint upp í Hálsaskóg svo ég sleppi við að mása upp Súkkulaðibrekkuna eða bíða lengi eftir leið 18 í Ártúni! 

Ég ákvað að taka fyrstu strætóferð
 í morgun (kl. 6.41), ekkert dekur og útsofelsi til 7.15, reif mig upp kl. 6.10, bjó til latte og gaf mér einnig tíma til að dást að því hvað ég er ótrúlega lítið mygluð á morgnana þrátt fyrir að ég telji mig B-manneskju (sem fer seint að sofa og sefur út). Kiddi sat undir stýri, yndislegur að vanda. Sætu karlarnir frá gömlu sætukallastoppistöðinni horfðu á mig í forundran (long time ... og allt það) en ég útskýrði fyrir þeim að ég svæfi orðið lengur og tæki 7.41-vagninn en fengi oftast far með Ástu. Þeir störðu á mig eins og þeim gæti ekki staðið meira á sama.

Það var skelfilegt að þurfa horfa upp á aukavagninn
fara niður í Hvalfjarðargönginn á meðan við hin stoppuðum á planinu til að taka sætu Borgfirðingana upp í. Þrír aðilar komu með, einn þeirra var hinn virðulegi lögmaður úr Hvalfjarðarsveit, bókaormur og starfsmaður TR. Hann hefði reyndar ekki getað sest hjá mér þar sem´ég hafði sest hjá virðulegri frú, til að tala um bækur eins og við gerðum einhvern tíma fyrir jólin. Ég hefði getað sagt honum frá bókunum sem ég las um helgina ... Lesaranum, Litlu stúlkunni og sígarettunni og ætli ég sé ekki hálfnuð með Bókaþjófinn. Við hefðum getað spjallað greindarlega með dassi af kímni um þessar bækur sem ég hefði getað mælt með við hann ... en þess í stað sátum við bæði í algjörri þögn hjá syfjuðum sessunautum (a.m.k. ég). Ja, það er eiginlega bærilegra að þegja þegar tekin er fyrsta ferð dagins, það er enn mið nótt, svona þannig. Tunglið skein skært á okkur, allt var bjartara og ég fann hvernig hár og neglur uxu hraðar. Hafði þó góða stjórn á málum og beit engan.

Ég hefði ekki þurft að gráta "tafirnar" við göngin lengi
. Aukabíllinn tók nefnilega Kjalarnesið og við komumst fram úr þeim þar, múaahahaha og vorum á undan í Mosó sem þýddi að við gátum valið um sæti í leið 6 sem beið hlý og notaleg eftir okkur. Sigþóra hetja fór út við Vesturlandsveginn en þar sem strætó stoppar á brúnni, eiginlega frekar mikið langt frá stoppistöðvaskiltinu lengir það leiðina mjög við að komast niður fyrir. Í stað þess að stoppa langt frá því ... nær Ártúni skapar þetta miklu meiri hættu. Mér dettur ekki í hug að fara þarna út og rúlla aftur niður vegkantinn, eins og í hittiðfyrra, ætla miklu frekar að eyða sætaáklæði og olíu fyrir Strætó bs þar til eitthvað verður gert fyrir þessa stórhættulegu stoppistöð. Eins og hefur verið lofað. Þeir sleppa við að gera tröppur fyrir okkur ... eða skilja eftir fjallaklifurbúnað ef þeir láta strætó stoppa nær Rvík, þá er brekkan/vegkanturinn búinn og fólk getur gengið sæmilega virðulega niðureftir. Sá að Sigþóra lagði ekki í að láta sig renna niður hættulega háa vegkantinn og tók langa, langa lykkju til að fara niður einmitt niður þar sem strætó ÆTTI að stoppa til að lágmarka hættu farþega, eða c.a. einum ljósastaur lengra en stoppistöðin. Af hverju fæ ég engu að ráða í strætómálum, súperfarþeginn sjálfur? Það er margbúið að kvarta yfir þessu við Strætó bs, meira að segja DV fór í málið og fékk þá að heyra að þetta yrði sko lagað. Það gleymdist bara að segja HVAÐA ÁR! 

Mér var boðið á mjög skemmtilegan fund í gærkvöldi
, þar var fullt af hressum kellum, fullt af flottum kökum og fullt af happdrættisvinningum ... getur það verið betra? Ég fékk óvænt sæti við skemmtilegasta borðið, held ég, við skemmtum okkur svo vel að í hefndarskyni við okkur var þess vandlega gætt að enginn við þetta frábæra borð fengi eins og einn happdrættisvinning ... snyrtivörur, þrífudót, Matarást, gjafabréf og önnur dýrð var í boði. Sagt er að þeir sem eru óheppnir í spilum (happdrætti, lottó osfrv.) séu heppnir í ástum. Kunni ekki við að segja sessunautum mínum að ég væri komin nokkuð fram yfir síðasta söludag og því ekki mikil von til þess að ég gengi út nema ég gerði eitthvað sérstaklega í því. Kannski er ÞAÐ heppni í ástamálum! Hver veit ... Það er t.d. of kalt til að vera í flegnum veiðigalla, ekki flott að vera með veðruð, frostbitin brjóst ... eða þannig.
Í spjalli okkar sessunautanna um allt milli himins og jarðar sagði ein að mamma hennar hefði litla trú á debitkortum og vildi helst nota peninga í öllum viðskiptum. Eitt sinn þegar hún komst ekki hjá því að nota kortið kom í ljós að það var útrunnið. Sú gamla hnussaði og sagði að það gæti hreinlega ekki verið, hún hefði aldrei notað það áður!

Vona að dagurinn ykkar verði magnaður og að þið fáið ekki vírus í tölvuna ykkar, krúttin mín.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?