Ég hef haft smávægilegar áhyggjur af því að enginn jólaundirbúningur er kominn í gang hér í himnaríki vegna annríkis í vinnunni. Er samt ekkert að farast úr stressi.
Á Facebook sé ég að fólk er búið að ÖLLU , baka sjö sortir, þrífa allt, höggva niður og skreyta jólatré og koma pökkunum fyrir undir því, gott ef það er ekki búið að elda jólamatinn sem verður bara haldið heitum fram að jólum ... hér á bæ er sannarlega ekkert Facebook-jólafnugg.
Í gær setti reyndar hálflasinn sonurinn upp nýkeypta jólaseríu í einn glugga í stofunni. Sjá sönnun.
Jólaskrautskassinn er enn óopnaður, smákökurnar óbakaðar, kalkúnabringan ókeypt (ef hún verður keypt). Allar jólagjafir eru þó komnar í hús og bíða þess að verða pakkað inn. Ég er líka búin að horfa tvisvar á Jóa Fel elda fyllta kalkúnabringu og ætla að reyna að herma eftir honum á aðfangadagskvöld ef ég tími að kaupa bringu, veit ekkert hvað slíkt kostar.
Áðan fór ég að hugsa um jólin í eld-eldgamla daga og það róaði mig algjörlega. Fólkið í gamla daga var ekkert að stressa sig, heldur byrjaði að undirbúa jólin á Þorláksmessu. Ég hef morgundaginn. Þorláksmessa fer nefnilega öll í boð hjá Nönnu, boð hjá Halldóri fjanda, jólagjafaafhendingar um allt höfuðborgarsvæðið, frá Seltjarnarnesi að Hafnarfirði og allt þar á milli, og að kyssa karlana í Kjötborg sem gefa mér vonandi dagatal.
Ég ákvað að taka gömlu, góðu dagana mér til fyrirmyndar og verkefni morgundagsins verða því að:
- Sópa bæinn.
- Sauma plögg eða prjóna sokka til að jólakötturinn éti okkur ekki.
- Steypa tólgarkerti.
- Sjóða hangikjet.
- Slátra jólasauð.
- Steikja laufabrauð og kleinur.
- Skipta á rúmum og þvo þvotta.
Fólkið í gamla daga þurfti reyndar ekki að pakka inn jólagjöfum (það var ekki mikið um slíkt fínirí), enda er það eini liðurinn sem ekki byrjar á s-i á verkefnalistanum.
Við sonurinn erum búin að ákveða að vakna ó-slöpp fyrir allar aldir í fyrramálið, ekki seinna en 10, og ráðast í jólaundirbúninginn. Margt fólk var á hverjum bæ í gamla daga og á meðan ein vinnukonan steikti kleinur þvoði önnur þvotta, vinnukarlarnir sáu um dýrin og allt það. Þetta allt ætlum við sonurinn að gera bara tvö og förum létt með það. Ef ég þekki okkur rétt þá sláumst við um að fá að gefa skepnunum á aðfangadag sem fá alltaf rækjur í tilefni jólanna.
Blogg
Engin Facebook-jól
20:53 › 21. desember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
