ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Bandbrjálað bold og morgunmynd

11:00 › 3. nóvember 2009

Allt er bandbrjálað í boldinu að vanda. Stefanía komin með tak á Donnu og segir: „Ef þú skilar mér ekki manninum (Eric, sem gæti næstum verið afi Donnu) þá kem ég Storm bróður þínum í fangelsi fyrir að hafa skotið mig.“ Donna hefur reynt mikið að skila Eric sem er allt of skilningsríkur. Þegar hún sagðist vera kynóð brosti hann bara og sagðist koma með henni á fundi fyrir kynlífsfíkla, virtist ekkert agalega ósáttur við þetta ... hehehe. Stefanía hótar og hótar og að lokum fær Donna fola til að þykjast vera viðhald og þau á fullu á kyssast og kela þegar Eric kom heim. Hvað gerir maður ekki fyrir bróður sinn svo hann lendi ekki í fangelsi? Eric er náttúrlega engill í mannsmynd, hann áttar sig á því að Donna er að reyna að losna við hann en skilur ekki ástæðuna. Hann vill konu sem sefur bara hjá honum en hvað er í gangi? Enn er Donna ekki laus og bróðir hennar því enn í hættu ...

Ekkert minna hefur gengið á hjá geðþekka geðlækninum
með varirnar, Taylor. Hún getur ekki tengst barninu sínu af því að það kemur úr eggi erkióvinarins Brooke (eggjaruglingur dr. Bridget, dóttur Brooke). Svo þolir hún ekki hvað Nick, maður hennar, og Brooke eru góðir vinir en Nick er vissulega einn þeirra manna sem Brooke hefur verið gift (Brooke stakk þar undan Bridget í annað skipti, hinn maðurinn var Deacon sem hún eignaðist Hope litlu með). Nú er Brooke á föstu með Ridge í líklega tíunda skiptið og þegar handritshöfundar vilja næst fá brúðkaup fáum við líklega brúðkaup þeirra ... eða hvað.

Taylor kom að Nick og Brooke
að kjafta saman á kaffihúsi og varð alveg brjáluð. Sá ekki þann þátt en sá í gær að Brooke kom í heimsókn til Taylor og vildi tala við hana, fann vínlykt og rændi barninu sem er náttúrlega hennar eigin þótt Taylor hafi gengið með það. Vínlyktin var vegna þess að Taylor (þurr alkóhólisti) hafði hellt víni í bolla og horfði á það, var ekki búin að taka sér sopa og ætlaði kannski ekkert að gera það ... bara kíkja smá ...  Þetta dugði Brooke sem hreinlega varð að bjarga barninu frá ástlausu og tilvonandi drykkfelldu móðurinni. Þegar Taylor brá sér frá náði Brooke í blessað barnið og hljóp með það út. Hún fór með það á skrifstofu Nicks þar sem Jackie, mamma Nicks, var að segja honum í hundraðasta skiptið að hann ætti að snúa sér að Brooke, alvörumóður barnsins, þeim tveimur væri ætlað að vera saman ...Taylor kom hlaupandi eftir að Brooke hafði sagt Nick frá vínlyktinni. Jackie tók barnabarnið fram og Taylor viðurkenndi að hafa sett vín út í kaffið en hefði ekki ætlað að drekka það ... hún hefði staðist freistinguna en ástæðan fyrir þessu var BROOKE! Sú kona væri ástæðan fyrir líðan hennar og freistingunni sem hún var næstum fallin fyrir. Hún vildi Brooke út úr lífi sínu og barnsins og Nicks ...

Myndin hér að ofan var tekin út um vinnuherbergisgluggann minn kl. rúmlega 9.30 í morgun. Öldurnar hafa verið fallegar, stórar annað slagið og ég vaknaði nokkrum sinnum í morgun (eld, eldsnemma) við lætin í þeim þegar þær skullu niður á Langasandinn. Tímdi þó ekki að fara á fætur kl. 6 þar sem það er þriðjudagur.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.