ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Bless, Tvíhöfði og strætóbreytingar (nöldr)

10:45 › 2. nóvember 2009

Heimir á aukabílnum var löngu kominn á bílaplanið við íþróttahöllina/sundlaugina þegar ég skottaðist út á stoppistöðina við Garðabraut. Stóra rútan hirti okkur því upp og svo hófst kappaksturinn til Reykjavíkur að vanda. Við N1-búðina fer aukabíllinn alltaf fram úr okkur, hirðir síðan upp Hetjur Hafnarfjalls, Borgfirðingana knáu, á sætukarlastoppistöðinni en þeir voru reyndar ekki þar í morgun. Rólyndislegi bílstjórinn var undir stýri og ók eins og engill. Hann fór fram úr Heimi þegar við komum upp úr göngunum og farþegarnir táruðust af gleði. Það er svo gaman að vera fremri bíllinn. Það var síðan viðbjóðslega spælandi þegar Heimir fór fram úr okkur þegar við stoppuðum fyrir stráknum á nýju stoppistöðinni í splunkunýja hverfinu rétt áður en maður kemur í Mosó en okkur tókst að hefna fyrir það í Lopabrekkunni (Ullarsels?) og verða 14 sekúndum á undan Heimi í Háholt. Það veit á góðan dag er ég viss um. Ætli Arnaldur komi ekki í hús í dag? Las einmitt æðislega bók í gær, Aþena, ekki höfuðborg Grikklands, heitir hún og var alveg stórskemmtileg unglingabók. Byrjaði á nýju bókinni hennar Kristínar Mörju fyrir svefninn og líst vel á ... las líka eina um helgina sem heitir Málalok, minnir mig, er ný glæpasaga frá Bjarti um einkaspæjara sem fær á sama tíma nokkur gömul og djúsí mál til að leysa, áratugagamalt barnshvarf, undarlegt morð sem ekkert hefur gengið að leysa ... og fleira. Hólar eru með gamansögur af Íslendingum þriðja árið í röð og haldið að undirrituð eigi ekki sögu á bls. 49? múahahaha, sögu af heimsku og fljótfærni, lögreglan kemur við sögu og alles.

Nú er búið að ákveða að það verður farin strætóferð, Akranes-Rvík-Akranes, um miðjan dag á sunnudögum! Mikið munu helgarmömmur og -pabbar á Skaganum gleðjast við þetta og Halldór fjandi líka (grunar að hann eigi einhvern hlut að máli eftir að hafa þurft að skutla mér heim á Skagann eftir árshátíðina á Selfossi). Akranes er með sérstaka strætónefnd þar sem farþegar eiga sæti og hafa tillögurétt og málfrelsi... jess,ekki nefnd með eintómum jeppakörlum og - kerlingum.

Þegar ég gekk upp Súkkulaðibrekkuna í morgun hugsaði ég beisklega til Strætó bs en þjónusta er nú mjög skert fyrir þá sem vinna í Hálsaskógi (Krókháls og nágrenni) nema viðkomandi sé íbúi Grafarholts, Grafarvogs og Árbæjar en bara þeir og aðeins þeir geta tekið leið 26 sem gengur þar á milli og bara þar (ekkert Hlemmur, Ártún kjaftæði sem gæti auðveldað fólki úr öðrum póstnúmerum lífið).

Veit ekki hvað nokkrir samstarfsmenn mínir og einnig þýðandinn á Stöð 2, sem áður tóku leið 18, gera nú, kannski búnir að gefast upp á strætó og fara bara á bíl ... Strætóinn var alltaf fullur af fólki. Þegar ég sé leið 18 núna þar sem ég stend á Vesturlandsvegi og bíð eftir leið 15 á heimleið virðist hann alltaf tómur þar sem hann brunar á fullu Vesturlandsveginn í áttina að Bauhaus.

Ef ég tek leið 19 (á hálftíma fresti) frá Ártúni (undir brúnni) þá get ég valið um tvær stoppistöðvar, báðar jafnslæmar ... ein er neðst í Súkkulaðibrekkunni (Hálsabraut) og sú næsta við rætur Árbæjar. Strax skárra ef vagninn stoppaði líka á miðri leið, hjá Rekstrarvörum, og ekki jafnlangt að labba. Það er mikil óánægja með þetta og við erum komin niður í tvo eða þrjá farþega sem fara út við Árbæjarrætur rétt fyrir kl. 8 (svona þegar ég labba ekki) og nöldrum saman (þótt við séum alveg ókunnug) þar til leiðir skilja. Í leið 18 var allt stappað af fólki og margir fóru út á hverri stoppistöð. Hvar er það fólk núna? Komið á einkabíl? Leið 19 er nefnilega full af skólakrökkum á leið í Árbæjarskóla og ég sakna hægláta mannsins, Indverjanna, ógreidda mannsins, þýðandans ... osfrv. Ég myndi sannarlega taka leið 26 í vinnuna ef hún stoppaði einhvers staðar annars staðar en bara í Grafarvogi, Grafarholti eða Árbæ.

Nú á að skella uppáhaldsútvarpsþætti mínum, Tvíhöfða, á annan tíma, eftirleiðis verður hann á laugardagsMORGNUM. Ég hef því ákveðið að hætta að hlusta á Tvíhöfða, því miður, ákvað það í morgun. Ég ætla ekki að láta taka útsof og verðskuldaða helgarhvíld af mér fyrir útvarpsþátt þótt æðislegur sé. Ég reyndi að "skamma" Einar Bárðarson á Facebook í gær en hann kallaði mig bara Guðríði (ég er kölluð Gurrí með einföldu) og sagði að þættirnir yrðu endurteknir á sunnudagskvöldum ,,, sem eru reyndar bæði sjónvarps (Fangavaktin, Himinblámi) - og snemm-að-sofa-kvöld hjá mér.

Held að þetta séu mikil mistök hjá útvarpsstjóranum. Tíminn kl. 13-16 er miklu betri útvarpstími en morgnarnir. Ég veit það af eigin reynslu ... frá útvarpsstjörnuárum mínum á Aðalstöðinni. Miklu meiri hlustun, viðbrögð, símtöl og skemmtilegheit þegar ég var eftir hádegi á laugardögum en fyrir hádegi. Mér var einu sinni hent fyrir hádegi þegar Hemmi Gunn var ráðinn. Hann var svo frægur að hann þurfti BETRI tíma en ég og Hemmi var settur á dagskrá kl. 13-16 um skeið og þegar hann hætti fékk ég náðarsamlegast að fara aftur á BETRI tímann.
Hrmpf ...

Ég sé rosalega eftir því að hafa ekki gert nokkuð sem ég hugsaði mikið um þegar ég flutti í himnaríki 10. febrúar 2006, eða að taka daglega mynd út um gluggann og setja á bloggið mitt. Stórar ákvarðanir eins og í hvaða átt ég tæki myndina, til vinstri að Reykjavík, til hægri að höfninni, eða beint áfram hafa vafist fyrir mér. Klukkan hvað skiptir líka máli því gaman er að hafa þetta alltaf á sama tíma. Það er oft komið myrkur´þegar ég kem heim úr vinnunni og auðvitað niðamyrkur kl. 6.30 á morgnana. Jamm, þarf að pæla í þessu, skella inn einni mynd á dag, þarf ekki að skrifa neitt með ... pæl, pæl.

P.s. Þeir sem ekki trúðu því að ég væri bláa öxlin í Heilsubælinu skoðið myndina hér að ofan og sannfærist!!! (Það var skrambi erfitt að halda fýlusvipnum sem ég´átti að vera með.)



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.