ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Vitlaust veður

09:02 › 9. október 2009

Vaknaði um sexleytið að vanda (á virkum dögum) og hvínandi læti voru í veðrinu eins og spáð hafði verið. Mér var skapi næst að snúa mér á hina hliðina en reif mig upp á ra*** sem er ekkert annað en hetjudáð. Eftir sturtu, hárþurrkun og aðra snyrtingu að hætti huggulegra kvenna sem mega þó muna fífil sinn fegurri var skokkað út á stoppistöð. Hálfur kaffibolli í mallakút. Stormurinn var á hlið þannig að ég hvorki fauk á stoppistöðina né þurfti að halda fyrir eyrun (til varnar hlustaverk). Nær dauða en lífi komst ég þangað eftir að hafa skriðið, velt mér í kollhnís, fokið á hlið og tekist á loft eða hefði gert ef vindur hefði verið ögn sterkari.

Elsku strætó mætti á stoppistöðina á réttum tíma - hann var sérkennilega tómur af farþegum en tveir bílstjórar voru til að tilkynna okkur farþegum varlega og af næmleika að of hvasst væri til að þorandi væri að fara Kjalarnesið the rokrassgat today. Eflaust hefðu flestir gargað trylltir vegna þessa en ég er ekki stjórnlaust fífl, heldur brosti mínu blíðasta og þakkaði þeim fyrir að láta vita. Vona bara að farþegarnir á Kjalarnesi hafi ekki beðið of lengi. Við pólska nágrannakona mín í gullúlpunni hefðum orðið ansi kaldar og hraktar þarna á stoppistöðinni ef góðu strætókarlarnir hefðu ekki látið okkur vita.

Ég auglýsti á Facebook eftir fari í bæinn en uppskar bara samúð frá Spáni og Noregi (hefði gerst ef Björk hefði verið vöknuð), jú og Íslandi. Vegna frábærrar Veðurstofu Íslands undirbjó ég mig vandlega í vinnunni í gær undir það að strætó gengi ekki - þannig að himinn og jörð ættu ekki að farast þótt ég komist ekki í bæinn. Frekar lítið kaffi er til á heimilinu en hér eru til álpoki, vistir og áttaviti ef við fjúkum út í veður og vind. Myndin hér að ofan er tekin rétt fyrir níu í morgun og sýnir útsýnið í vestur. Ef vel er gáð má sjá grilla í Ameríku.

Vona að dagurinn ykkar verði frábær þrátt fyrir rokið.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.