ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Skrúðgarðurinn í rokinu

16:38 › 9. október 2009

Er búin að komast að því hvers vegna ég blogga svona sjaldan.
Það er vinnan sem er svona tímafrek. Þegar ég er komin heim í himnaríki
er ég svo upptekin við að slaka á eftir vinnudaginn (lesa, vinna, horfa á
sjónvarp) að blessað bloggið verður útundan. Kannski ég fari bara að
slugsa í vinnunni (eins og í dag), galdra heilu fárviðrin á Kjalarnesið til að fá fleiri bloggstundir - minnst tvisvar á dag! Jamm.


Við Ásta ákváðum að skreppa í hádeginu á splunkunýjan og
opnaðan-í-gær-eftir-endurbætur-og eigendaskipti-Skrúðgarðinn og fá
okkur súpu. Elskan hún María er hætt með staðinn og tvær ungar og
hressar atvinnulausar stelpur sáu sér þar með leik á borði, ætla nú
að gleðja bragðlauka Skagamanna og hafa af því vinnu.


Nýir litir, veggfóður og flott málverk á veggjum
(málverkasýning). Himnesk grænmetissúpa, ásamt heimabökuðu speltbrauði
og alls kyns gómsætum salötum. Allt heimabakað og hægt að fá
sykurbombur eða hollustu - bara eftir smekk hvers og eins. Ég fékk mér
latte á eftir en baunirnar eru frá Te og kaffi, Espresso Pasero, ekki
amalegt það kaffi!


SVO KOM RÚSÍNAN Í PYLSUENDANUM. Heimagerður konfektmoli,
tryllingslega góður. Úr agave-sírópi, kókosolíu og hreinu kakói (100%).
Engin transfita, enginn sykur og hreint kakó - eiginlega bara
hollustumoli, enda heitir þetta Samviskubitar, þetta snjalla nafn kom
upp í hugann á öðrum eigandanum þegar hann (hún sko) var að spjalla við
okkur Ástu til að spyrja hvernig okkur líkaði við konfektið. Hún sagði
okkur í leiðinni að þetta væri ættað frá stórsnillingnum Sollu! Það var
svo leiðinlegt að missa eina kaffihúsið á Skaganum en það er hægt að
gleðjast yfir því að það hafi verið opnað aftur. Verst að
upplýsingamiðstöðin verður ekki þar lengur, heldur komin upp í
safnasvæði, skilst mér. Hefði reyndar verið sniðugra að hafa hana í
kaffihúsinu sem er í miðju bæjarins, þar sem lífið er, og strætó hefur
endastöð. Við Ásta spjölluðum mikið, enda allt of langt síðan við höfum
hist, ég var komin með fráhvarfseinkenni - mánuðirnir bara fljúga!
Skrúðgarðurinn verður opinn frá 10-23 og lengur um helgar. Bara snilld. Í gærkvöldi voru þar blús- eða jasstónleikar, skildist mér á Ástu sem er á myndinni hér að ofan rétt áður en súpan og salötin voru sett á borðið.

Við Ásta komum við í húsi á Kirkjubrautinni (Staðarfell-skóbúð
var þarna í gamla daga) þar sem einstaklega hresst fólk var á fullu við
að taka slátur. Hugurinn fór beinustu leið 40 ár aftur í tímann þar sem
ég var stödd í húsi á Heiðarbrautinni, eiginlega á móti húsinu sem
bókasafnið flutti í úr húsnæðinu þar sem Skrúðgarðurinn er núna. Vá, ég
fæ gæsahúð ...   Þarna á Heiðarbrautinni bjó yndisleg fjölskylda sem
"vondir" Jehóvar heimsóttu stundum. Líklega er það þeim að kenna að ég
hef aldrei frelsast (þrátt fyrir miklar tilraunir til að frelsa mig)
því að góða konan á heimilinu var að kenna mér að prjóna þegar "vonda"
fólkið kom sem oftar og harðbannaði okkur að snerta á handavinnunni á
meðan það las guðsorðið. Svona virkar nú hugurinn, sláturgerð 2009 =
vottar Jehóva með læti á sjöunda áratug síðustu aldar.Örugglega hið
vænsta fólk en maður skyldi aldrei trufla litla stelpu við að læra að
prjóna trefil! Já, og þessi góða kona leyfði mér einu sinni að sauma vömb þegar allt var vaðandi í blóði í kjallaranum hjá henni, heilu balarnir fullir af einhverju. Vona að þetta hafi verið hefðbundin sláturgerð, man nefnilega ekki eftir að hafa séð Jehóvana eftir þetta.



Nýlega komst ég að því að við Skagamenn erum með nytjamarkað á
borð við Góða hirðinn og við Ásta náttúrlega þangað eftir matinn. Þar
voru allir! Ásta í bókasafninu (í æsku minni) var þarna og prinsinn
hennar hann Hlini (þetta skilja þeir sem muna eftir ævintýrum úr æsku
sinni, t.d. þessu um Hlina kóngsson) strætóvinur minn.. Ellý var þarna
líka og sagði að þetta væri sko BÚÐIN! Ég keypti gamaldags vasa og
gamla skál, alls á kr. 400 (já, þetta er okurbúlla ...not) og nú er ég
loksins komin með fallegt punt í gluggann minn í stigaganginum. Ekki
seinna vænna. Þessi nytjamarkaður er bak við gamla Iðnskólann þar sem
Hvíta húsið var einu sinni. Opið fim, fös og lau. Allur ágóði rennur
til góðs málefnis.



Jamm, þetta var nú meiri ævintýradagurinn og bara rétt hálfnaður!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.