Áttaði mig á því í gær að ég á engin rauð föt, ekki einu sinni rauða húfu. Við Skagamenn reyndum að setja Íslandsmet í gær með því að mynda rauðan kross á Merkurtúni. Ég bjóst við 22 aðilum og vonaði að þeir væru vel feitir ... til að fylla út í plássið, en það var sá fjöldi sem hafði meldað sig í gegnum Facebook. Kranabíll mætti á staðinn með ljósmyndara innanborðs og rauðklæddir Skagamenn þustu að. Góðhjörtuð kona sem átti greinilega fullt af rauðum fötum skellti yfir mig rauðum jakka og rauðu sjali. Allt í allt urðum við rúmlega 100 og geri aðrir betur í 150 manna borg eða rétt rúmlega það. Hlýtur að vera heimsmet miðað við höfðatölu.
Síðan var rokið heim til að taka á móti HETJUM HAFNARFJALLS en önnur hetjan var að skila mér níðþungri bók (í kjarneðlisfræði) til að ég þyrfti ekki að rogast með hana úr strætó. Hetjurnar fengu kaffi og einnig piparkökur en ég skreytti nokkrar um daginn í tilefni af kökublaðinu sem kemur út í næsta mánuði. Kvöldið fór síðan í sláturgerð og lestur góðra bóka.
Borgfirðingarnir mættu ekki í strætó í morgun og allir litu á mig. Fiskisagan hafði sannarlega flogið. Ég sagði bara sallaróleg að hetjurnar hefðu fengið hjá mér kaffi og piparkökur og ... drifið sig heim. Í himnaríki eru nú allar frystikistur fullar af mat og nýr bíll á hlaðinu.
Stefanía er í bölvuðum vandræðum. Brooke sagði henni í síðasta þætti að Storm bróðir hefði skotið hana en ekki Stefán pabbi og biður hana um að þegja yfir þessu og losa jafnframt Stefán úr fangelsi. Svo birtist Eric með SKILNAÐARPAPPÍRA og biður hana um að skrifa undir. Hann er skotinn í Donnu, litlu systur Brooke, en Eric var einmitt kvæntur Brooke í denn og eignaðist með henni dr. Bridget og Rick. Og Bridget var einmitt gift Nick en glataði honum til Brooke (sem stakk þar með í annað sinn undan dóttur sinni) sem áttaði sig á því að hún vildi aðeins hann Ridge þegar hann var farinn að deita Ashley ilmvatnskonu. Taylor, fyrri kona Ridge, nældi þá í Nick og eignaðist með honum barn úr eggi Brooke (óvart) og nær ekki að mynda tengsl við barnið. Rick aftur á móti elskaði Ashley þegar stóri bróðir hans og einnig stundum stjúpfaðir (t.d. núna), Ridge, deitaði hana og síðan varð hann skotinn í Phoebe, dóttur Ridge, það fattaðist nefnilega að í raun væru þeir Ridge ekki blóðskyldir hálfbræður þar sem kom í ljós að Massimo (pabbi Nicks) átti Ridge með Stefaníu, þannig að Ridge og Nick eru hálfbræður.
Stefaníu fær snjalla hugmynd. Hún ákveður að hjálpa Brooke, losa Stefán (Bobby í Dallas, pabba Brooke) úr fangelsi og í staðinn á Brooke örugglega að eyðileggja samband Donnu og Erics. Verst er að Storm er lagður af stað á lögreglustöðina til að játa morðtilræðið. Á mánudaginn og næstu vikurnar (hver þáttur er sem þúsund ár) kemur í ljós hvort þetta tekst hjá Stefaníu.
Sonurinn eldar nú Borgfirðinga-hakkrétt, stútfullan af hvítlauk. Hér er allt gert til að sleppa við að fá flensu. Lýsi drukkið, farið snemma í ból og reynt að halda góða skapinu í hámarki. Ætti ekki að klikka.
Blogg
Heimsmet, sjálfsbjargarviðleitni og bold
17:32 › 16. október 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
