ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Teknóstuð í morgunsárið

11:46 › 9. janúar 2009

Góðverk borga sig ... svona þannig séð. Eftir að mér hafði tekist að bjarga nágranna mínum frá því að fara fýluferð í gegnum göngin í morgun þá launaði hann fyrir sig með því að banka á dyrnar hjá mér og bjóða mér bílfar í bæinn ... þessi elska. Við vorum komin í göngin þegar hann setti tónlist á fóninn ... ef tónlist skyldi kalla. Ástkær granni minn svo illa haldinn af teknóæði að hann gat ekki leyft virðulegum, háöldruðum farþega sínum að slaka á, horfa t.d. á hreina veggina í Hvalfjarðargöngunum (ekkert veggjakrot þar) og spjalla jafnvel um landnámshænurækt við hana eða annað spennandi. Nei, það var allt sett í botn og ég gat ekki fleygt mér út á ferð, ekki í göngunum, þar er svo mikil mengun. Myndin lýsir stemmingunni í morgun í litla, sæta Yaris-bíl granna míns.
Við komu í vinnuna hristist ég taktfast við mikla skelfingu samstarfsfólks sem heldur að blóðið í mér hreyfist vanalega ekki. Hjartslátturinn er þó orðinn rólegri, enda um klukkutími síðan ég kom í vinnuna.
Þetta er alls ekki óbærileg tónlist, það kemur stundum eitthvað hljóð til tilbreytingar við dúmm, dúmm-ið, heyrist eins og í heftara, kaffikvörn og slíku innan um taktinn. Verð þakklát granna mínum til eilífðarnóns, ég kom tæpri klukkustund fyrr til vinnu en með strætó vegna þessa góðverks hans og kynntist teknótónlist í ofanálag!
Svo fékk ég tölvupóst áðan frá konu hjá Strætó bs sem vildi vekja athygli mína á því að tímasetningar breytast eitthvað hjá Skagastrætó (leið 57) í næstu viku. Nú er fólkið hjá Strætó bs komið í guðatölu hjá mér aftur, eftir að ég komst að hinu sanna. Ég hatast þó ekkert út í bæjarstjórnina mína þótt ég telji að þreföld hækkun fargjalds eigi eftir að skaða bæinn þegar til lengri tíma er litið. Farþegarnir í morgun töluðu um að mikið hefði fækkað í fyrstu ferð, áður tvær fullar rútur, í gær ein full rúta plús tveir farþegar, og ekki vorum við mörg í morgun í annarri ferð. Kannski breytist það þegar háskólarnir byrja, ég vona það.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?