ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Stutt strætóferð

09:00 › 9. janúar 2009

Kiddi tók okkur nokkur upp í á Skaganum undir kl. 8 og ók sem leið lá til Reykjavíkur. Elskan hún Sigþóra kom í vagninn á einni nýju stoppistöðinni en hún er hætt að taka fyrsta vagn, búið að breyta vinnutímanum hennar. Við sátum fremst, ásamt Hafþóri og Ingu Sig og glöddumst yfir því að leið 6 bíður eftir okkur í Háholti sem þýðir að ég hefði náð leið 18 við Ártún ... ef löggan hefði ekki beðið eftir okkar við göngin sunnanmegin og snúið okkur við vegna umferðarslyss á Kjalarnesi. Mikið vona ég heitt og innilega að fólk hafi ekki slasast alvarlega en skv. fréttum var þetta þriggja bíla árekstur og fimm fluttir á slysadeild.
Komum til baka á Skagann þar sem mér rétt svo tókst að stoppa granna minn í himnaríkishöllinni en hann var á leiðinni út í bíl til að fara í vinnuna en hann vinnur sem tæknisnillingur hjá RÚV. Ábyggilega feginn að sleppa við að borga þrisvar í göngin á sama morgninum, nema hann hefði farið Kjósarskarðið sem strætó fer ekki.
Inga sagði að nú yrði hundurinn hennar alveg klikkaður, hann héldi örugglega að klukkan væri orðin hálfsjö að kvöldi og myndi fagna henni ógurlega. Tommi og Kubbsa tóku komu minni af miklum rólegheitum og geltu ekkert af gleði, enda rólegir og yfirvegaðir kettir.
Nú er tæpur klukkutími í næstu strætóferð frá Akranesi (9.41), kannski verður búið að opna veginn þá. Sigþóra ætlaði að hringja í mig ef hún vissi eitthvað. Löggan við göngin talaði þó um að það yrði jafnvel lokað í nokkra klukkutíma. Og það er föstudagur, blaðið á leið í prentsmiðju. Var búin að skila öllu mínu efni, gerði það í gærmorgun, sjúkkitt, og „bara“ yfirlestur í dag.
Nú hefði verið gott að eiga trillu, getað boðið farþegunum með yfir flóann og við hefðum getað veitt í soðið í leiðinni, enginn kvóti þar!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?