ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Bréf frá Strætó bs

13:25 › 5. janúar 2009

Gafst upp á bið eftir svari frá stjórnarfólki Strætó bs, sendi fyrirspurn á vef strætó um helgina ... og viti menn, sjálfur framkvæmdastjórinn, Reynir Jónsson, sendi mér skýrt og skorinort, upplýsandi og kurteislegt bréf. Fær hann alla mína  virðingu og þakkir fyrir það.

Málið hefur greinilega ekki verið útskýrt nægilega vel fyrir okkur farþegum sem nánast allir hafa beint reiði sinni og undrun að Strætó bs ...
Aksturinn á milli er ekki lengur á vegum Strætó bs, heldur Akraness, Hvalfjarðarsveitar og Borgarness sem hafa einkaleyfi á akstrinum. Þess vegna fá sveitarstjórnir ágóðann af kortakaupum og borga Strætó bs ákveðna þóknun, m.a. fyrir að við fáum að ferðast um höfuðborgina. Okkur bauðst að fá að innlimast inn í sjálft strætókerfið en væntanlega hefur það verið of dýrt fyrir sveitarfélögin fyrst það var ekki samþykkt. Enn er ég afar ósátt við að Akranes hafi verið sett í gjaldsvæði 3, Kjalarnes, bókstaflega við hliðina á okkur, er í gjaldsvæði 1 og eðlilegra að við værum í gjaldsvæði 2, en það gæti tengst því hvað Akranesbær hafi verið tilbúinn að borga til Strætó bs. Bærinn greiðir ekki meira niður en áður en fær ágóðann af öllum kortum. Vonandi verður einhverju breytt núna þegar óánægja farþega hefur komið svona sterkt í ljós og sumir treysta sér ekki lengur til að taka strætó. Það hefði verið áhugavert að vita hvað Strætó bs vildi taka fyrir að innlima okkur inn í kerfið ... sem hefði táknað óbreytt fargjald!

Annars bara allt í þessu fína!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?