Mikið hefur þetta verið rólegur dagur ... meira að segja sjórinn er stilltur og krummarnir fljúga löturhægt framhjá gluggum himnaríkis. Skyldi þetta vita á stjórnarslit? Eða eldgos?
Kláraði Síðasta fyrirlesturinn í nótt. Dauðvona maður á besta aldri, kvæntur og faðir þriggja ungra barna, skrifar um hvernig við eigum að láta drauma okkar rætast og hvernig honum tókst það sjálfum. Mér fannst t.d. áhugavert að lesa um fyrrverandi kærustuna hans sem skuldaði nokkur þúsund dollara og var að farast úr áhyggjum. Hún fór í jóga öll fimmtudagskvöld til að reyna að róa hugann. Maðurinn benti henni á að ef hún fengi sér frekar vinnu á fimmtudagskvöldum gæti hún greitt upp skuldina á ekki svo löngum tíma. Akkúrat það sem ég hugsaði ... konan gerði þetta, vann á veitingastað eitt kvöld í viku, greiddi upp skuldina og hélt síðan áfram í jógaleikfimi, alsæl og áhyggjulaus. Auðvitað á að vaða í málin, uppræta rót vandans! Jamm. Byrjaði síðan á hörkukrimma eftir sænskan eða norskan höfund. Lofar góðu.
Sorglegt var að lesa um lát 16 ára sonar John Travolta og Kelly Preston. Ég þurfti að fara á erlenda vefmiðla til að sjá myndir af Jett en með íslensku fréttunum voru bara myndir af pabbanum. Kannski læt ég pirra mig mögulega leti sumra íslenskra blaðamanna við að finna myndir með fréttum en svo gæti verið einhver einföld ástæða fyrir þessu, dýrar myndir ... ég veit það ekki. Eins og fréttin af tvíburunum um daginn, önnur stelpan svört, hin hvít, og engin mynd með. Það tók mig innan við mínútu að finna mynd af tvíburunum nýfæddu ásamt eldri systrunum. Kannski verður þetta með tímanum fréttablogg hjá mér (með stolnum myndum af google.com). Í stað þess að pirrast þá geri ég bara eitthvað í málunum!
Ætla með Ástu á kagganum í fyrramálið þannig að útsofelsi til kl. 7.15 er ekki inni í myndinni, heldur þarf að stilla klukkuna á 5.55. Já, sá tími er til á vekjaraklukkum þótt ótrúlegt sé. Það er náttúrlega frábært að vera komin til vinnu fyrir kl. 7 og fá góðan vinnufrið í a.m.k. klukkutíma. Spennandi að vita hvernig strætósamgöngur verða á morgun eftir vægast sagt erfiða byrjun á föstudaginn. Sigþóra beið um morguninn ásamt fjölda manns eftir strætó í skýlinu við sundlaugina, þrælmerktu skýli við Jaðarsbakka. Strætó beygði til vinstri frá Garðabrautinni, ekki hægri, og skildi þar með alla farþegana eftir. Innanbæjarstrætó-snillingurinn sá þetta og gerði sér lítið fyrir, tók upp hissa og eflaust grátandi fólkið og elti hinn strætó, æsispennandi alveg. Sigþóra lenti líka í svipaðri seinkun og ég á heimleiðinni, var vön að taka 16.45 vagninn fyrir áramót en stefndi nú á 17.20-vagninn skv. nýju áætluninni. Hann fór ekki fyrr en 17.45 vegna seinkunar og vinnudagur Sigþóru með ferðum var 12 tíma langur!
Þessu verður örugglega breytt, en hvernig ... það er stóra spurningin. Ef frekar verður dregið úr þjónustunni þá fækkar enn í hópnum sem ætlar að nota strætó. Ég veit ekki hvernig örugglega bílandi fólki dettur í hug að breyta þessum hlutum svona mikið án þess að hafa farþega eða bílstjóra með í ráðum. Kannski ætti bæjarstjórnin okkar, ásamt þeim í Borgarnesi og Hvalfjarðarströnd, að berja í borðið og rifta þessum samningi. Ekki hefur verið staðið við neitt gagnvart þeim í Hvalfirði, það kom í ljós að sveitarstjórnin þar átti að setja útskot við þjóðveginn til að strætó gæti stoppað, tímaáætlunin gerði ekki ráð fyrir að fara inn á nein bílaplön og það gleymdist að segja þeim í Hvalfirði það. Já, ansi margir farþegar voru skildir eftir með sárt ennið þennan fyrsta dag. Vona þó að allt hafi gengið vel um helgina. Aðalreynslan á þetta kemur á morgun og næstu daga þegar skólafólkið kemur úr jólafríi.
Sigþóra sagði mér annað, eða að talsmaður neytenda hefði sagt að ekki væri löglegt að ógilda strætókort Skagamanna sem þeir hefðu keypt fyrir áramót. Þeir sem eiga slík kort eiga að fara með þau á bæjarskrifstofurnar og andvirði þeirra á að ganga upp í nýtt og helmingi dýrara kort. Eðlilega má þetta ekki og það verður spennandi að fylgjast með framhaldinu. Fólk keypti kannski þriggja mánaða kort í desember sem er nú orðið ógilt í Borgarfjarðarstrætó. Ég ráðlagði ungri, áhyggjufullri konu á stoppistöðinni á föstudaginn að sýna kortið sitt bara þrisvar, það hlyti að duga ... en svo var frítt í strætó, a.m.k. frá Borgarnesi í Mosó. Ef farþegar hefðu verið upplýstir fyrr um málið hefði verið hægt að koma í veg fyrir svona rugl. Skrýtið að halda svona stórmáli leyndu. Ráðast svo á okkur í kreppunni og segja okkur að "keyra kostnaðinn niður", eins og segir svo fallega í bæklingnum sem barst inn á hvert heimili hér milli jóla og nýárs. Áróðurinn er miðaður við þá sem eiga bíla og sett voru upp alls konar dæmi um sparnaðinn af því að taka strætó, farþegi á stoppistöðinni í Háholti á föstudaginn sagði að það þyrfti nú samt að borga tryggingar og gjöld af bílum þótt þeir standi. Fyrir mig er þetta bara pjúra 200% hækkun þar sem kort hentar mér ekki nema Ásta hætti að keyra á milli. Þrír strætómiðar fyrir hverja ferð. Ég er orðin of gömul til að daður við bílstjóra dugi til afsláttar, ef ég t.d. blikka karlmenn núna halda þeir að ég sé með augnsjúkdóm.
Blogg
Of gömul til að daðra með árangri
17:48 › 4. janúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
