Við Eiríkur Jónsson gengum hlið við hlið framhjá skrifborði samstarfsmanns sem var með kúlupoka opinn á borðinu. Pokinn var í bjóðandi stellingu, sneri frá samstarfsmanninum og að gangandi vegfarendum. Ég bjó mig undir að fá mér eina en þá fékk Eiríkur sjokk og muldraði eitthvað um skaðleg áhrif sælgætis, maður ætti ekki að vera sjúkur í sælgæti, eitthvað slíkt. Ég var svo orðlaus af þakklæti að ég gleymdi að segja honum að ég væri reyndar með allar tennur heilar og mjög dugleg að bursta. Verulega fallegt af honum og örugglega mjög árangursríkt gagnvart þeim sem eru ekki það barnalegir að líta á slíkt sem íhlutun í innanríkismál. Sumir gera lífið bara skemmtilegra og þetta er sannarlega ekki í fyrsta sinn sem hann hefur gert líf mitt skemmtilegra með umhyggju.
Vefmiðlarnir mbl.is og dv.is nota báðir orðið UNGAbörn í fyrirsögnum hjá sér í dag. Mér finnst þetta orð í sama flokki og bogAmaður og happAdrætti. Ekki segjum við ungAbarnasund ... er það nokkuð? Hmprr.
Það er orðið langt síðan einhver hefur verið drepinn í boldinu og nú er komið að því. Mikið hefur gengið á. Taylor reynir árangurslaust að verða ófrísk, tekur hvert óléttuprófið af öðru, og Brooke bíður á hliðarlínunni eftir því að þetta mistakist en þá fær hún Nick, heldur hún. Brooke er nefnilega búin að brenna allar brýr að baki sér, sagði upp hjá Nýja-Forrester og hefur sagt endanlega skilið við Ridge (daginn fyrir brúðkaupið). Taylor býður Nick undankomuleið eftir neikvætt óléttuprófið kl. 17 en hann segist bara vilja Taylor þótt hann beri enn smá tilfinningar til Brooke. Brooke reynir allt, býður Nick m.a. að ættleiða krúttmolann Hope, sem hún eignaðist með fyrri tengdasyni sínum en þess má geta að Nick var seinni tengdasonur hennar. Sumir hafa blæti fyrir tengdabörnum, aðrir því skafa snjó af bílum ...
Shane, flækingurinn/garðyrkjumaðurinn sem var vitni að því þegar Taylor keyrði full og próflaus á Dörlu og drap hana, er farinn að ofsækja Phoebe litlu aftur. Ridge er að verða brjálaður, kýlir hann reglulega og svo er dóttirin skíthrædd líka.
Ilmvatnskonan Ashley og Ridge eru farin að draga sig saman, Stefaníu til mikillar gleði. Steffí er samt á vaktinni, hún vildi helst af öllu að Brooke og Nick enduðu saman og sigldu saman út á hafsauga en þar sem hún lítur á Taylor, fyrrum tengdadóttur sína, sem dóttur vill hún að samband hennar við Nick fái að vera í friði fyrir Brooke.
Shane ryðst inn á Forresterana enn einu sinni í leit að Phoebe, sem hann elskar svo heitt, en rekst á pabbann. Nú er Shane með byssu og ógnar Ridge. Þeir tala smá og takast líka á, skot hleypur úr byssunni og Shane deyr. Ridge ætlar að hringja á lögguna en gömul minning rifjast upp, minning síðan í eldgamla daga og ég jafnvel ekki fædd, þá var hann ákærður fyrir manndráp. Sýknaður að vísu en dómarinn sagði að ef hún sæi hann aftur fyrir rétti myndi hann ekki sleppa svona vel. Ridge grípur því til næstbesta ráðsins, skellir líkinu í hentugan poka sem hann finnur á skrifstofunni og heldur á líkinu niður í bílageymsluna. Þegar hann setur það í skottið, alveg í rusli, sveittur og einbeitingarlaus, veit hann ekki að mamma hans situr í bíl sínum þarna og býr sig undir að fara heim. Stefanía fattar að eitthvað er að og eltir Ridge sem ákveður að fleygja Shane í sjóinn. Á meðan spjallar Taylor við lögguna í LA, þessa sem gerði Taylor lífið leitt í sambandi við fyllirísaksturinn.
(Myndin efst var tekin við verðlaunaafhendinguna Gyllta klósettsetan í Hollywood í fyrra.)
Á meðan ég horfði á boldið og bloggaði hlustaði ég líka á þátt Halldórs frænda og Markúsar á Útvarpi Sögu. Gullkornin hafa flogið. Laddi og sonur hans, Þórhallur, eru í viðtali. Halldór við soninn: Þú varst einu sinni kosinn „Fyndnasti maður Íslands. Hvað fór úrskeiðis?“
Blogg
Umhyggja Eiríks og loksins bold
15:17 › 31. janúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
