Þessa dagana er opið fyrir nokkrar aukasjónvarpsstöðvar á fjölvarpinu og gaman fyrir þá sem ekki tíma að kaupa áskrift að þeim að kíkja á þær. Við erum með fræðslupakkann, ég þori ekki að segja honum upp, ekki eftir að hafa gert það 1. sept. 2001 og verið Sky- og CNN-laus 10 dögum seinna.
Erfðaprinsinn ræktar reglulega með sér flughræðsluna með því að horfa á flugslysaþætti á NaGe og horfði græðgislega á þátt um það þegar geimskutlan Challanger sprakk 1986(?). Sá atburður hafði mikil óbein áhrif á mig, ég gerðist nefnilega þjófur einn daginn og lenti í löggunni um kvöldið. Alveg satt.
Ég missti einhverra hluta vegna af öllum sjónvarpsfréttatímum um Challenger-slysið. Nokkrum vikum síðar fór ég til tannlæknis og á biðstofunni var eintak af Newsweek með einstökum Challenger-myndum á nokkrum blaðsíðum. Ég var með DV dagsins í töskunni minni og skipti lymskulega á blöðum. Um kvöldið hringdi dyrabjallan og maðurinn sem stóð á tröppunum kynnti sig sem rannsóknarlögreglumann. Ofboðslega brá mér. Mér létti mjög þegar hann spurði mig bara út í líkin í bakgarðinum og horfnu hjónin á miðhæðinni. Hann var nú ekki samviskusamari en það að þegar ég viðurkenndi afbrot mitt fyrir honum þá handtók hann mig ekki. Þarna hefði hann getað byggt grunn að sístelandi manneskju sem héldi að hún kæmist upp með slíkt. Kannski vinn ég hjá tímaritaútgáfu bara til að geta lesið nýútkomin tímarit og þurfa ekki að stela þeim af biðstofum. Já, Challenger breytti sannarlega lífi mínu.
Hér á Skaganum er góð þjónusta á allan hátt, eins og ég hef alltaf sagt. Ef það væri ekki orðið svona dýrt í Rvíkurstrætó væri fullkomið að búa hérna. Erfðaprinsinn fékk t.d. tíma í klippingu í morgun og er nú mjög ánægður með „hermannaklippinguna“. Hann þolir ekki að vera með lubba. Ég viðurkenndi í fyrsta sinn fyrir honum áðan að ástæða þess væri væntanlega mér að kenna. Þegar hann var lítill var hann ljóshærður með krullur og leit út eins og lítill prins, slöngulokkarnir náðu stundum niður á axlir og mér fannst hann mesta krútt í heimi. Ég man ekki hvenær ég missti völdin endanlega en allt í einu var hann orðinn snöggklipptur og hefur haldið því síðan. Hugsa reyndar að slöngulokkar klæði ekki fullorðinn, hávaxinn mann ... nema hann vilji kannski fara að ganga í fjólubláu flauelsskikkjunni með loðkraganum sem ég gaf honum í jólagjöf og sagði að væri náttsloppur.
Nú er fyrsti laugardagur í nýju lífi í himnaríki. Ég tók þá ákvörðun nýlega að elda alltaf eitthvað sem ég hef aldrei prófað að gera áður alla laugardaga hérleiðis. Var að hugsa um að gera lasagna í kvöld. Hef ágæta hugmynd um innihaldið en veit ekki hversu lengi lasagna á að vera í ofninum og við hvaða hitastig á Celsíus. Má nota blástur eða þurrkar það bara matinn? Best að kíkja í Matreiðslubók Nönnu eða Matarást ... eða einhverja af þessum u.þ.b. 50 matreiðslubókum sem ég á.
Blogg
Challenger-áhrifin, slöngulokkar og lasagna
16:59 › 31. janúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
