ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Rósrauð gleraugu og ný sætukarlastoppistöð

11:47 › 30. janúar 2009

Dásamleg strætóferð í morgun. Þægilegur vagn, yndislegur bílstjóri, skemmtilegir farþegar, ný sætukarlastoppistöð ... allt fullkomið nema fargjaldið (já, ég hætti ekki að mótmæla 200% hækkun). Gamalt hjarta mitt tók kipp og gladdist óumræðilega þegar við stoppuðum við síðustu stoppistöðina á Skaganum, rétt hjá Bónus, og eintómir stórhuggulegir karlmenn komu upp í vagninn í stríðum straumum, alla vega fimm. Ekki var hann heldur mjög óhuggulegur Borgnesingurinn sem kom upp í ögn síðar. Mér leið eins og á Penn Station í New York eða á Hlemmi í Reykjavík þegar við ókum inn á stæðið við göngin, leið 57 frá Reykjavík skilaði af sér í Borgarnesbílinn (leið 58) farþegum til Borgarness, sekúndu seinna komum við frá Akranesi og tókum farþegann fallega til Reykjavíkur frá Borgarnesi. Algjör umferðarsulta miðað við rólegheitin sem hafa ríkt fram að þessu.

Við Inga Sig ræddum um íslenskar bókmenntir
á leiðinni en hún vinnur í bókabúð. Hún er að lesa Skaparann eftir Evu frænku og ég var að „klára“ Konur eftir Steinar Braga. Held reyndar ég verði að lesa síðustu kaflana aftur því að ég var að verða meðvitundarlaus af syfju og þreytu þegar ég renndi yfir þá, man varla hvernig þessi spennandi og óhugnanlega bók endaði ... Við Inga vorum algjörlega sammála um að báðar bækurnar væru einstaklega vel skrifaðar!

„Leið 6“ beið eftir okkur í Mosó og ók með okkur beinustu leið í Ártún þar sem hún breyttist í leið 6 ... jamm, strætólíf getur verið dularfullt og flókið. Mun sakna brosmilda Haraldar af leið 15, nema ég sofi vísvitandi yfir mig annað slagið og hitti á hann undir stýri við skiptin í Mosó. Ákvað að fara alla leið niður á Lækjartorg með sexunni og hitta vinkonu í Kaffitári sem skutlaði mér síðan upp í Hálsaskóg eftir að ég hafði splæst á hana kaffi sem við tókum með okkur í götumáli.

Pétur Stefánsson, grafíker, tónlistarmaður
og einn af morgun-"körlununum" í Kaffitári, (samdi lagið Ung, gröð og rík) kom hlaupandi inn, grútspældur yfir því að hafa misst af spjallinu um mál málanna sem hafa verið rædd í tætlur hvern virkan morgun í áraraðir. Pétur vissi sem var að allt fúttið væri milli 8 og 8.30 en þarna var klukkan alveg að verða 9. Þetta er gamli hópurinn af Prikinu sem flutti sig í Kaffitár fyrir mörgum árum eftir að Prikið fór í gegnum heljarinnar breytingar. Pétur yngist með hverju árinu, mig grunar að hann eigi Dorian Gray-málverk uppi á háalofti hjá sér. Mögulega gætu gleraugun villt mér sýn, þau eru svo dauf. Með þeim sjást ekki hrukkur á fólki, heldur ekki aukakíló. Á ég nokkuð að fá mér sterkari gleraugu? Fórnarkostnaður við að halda uppteknum hætti með þau gömlu er sá að ég sé orðið mjög illa frá mér og fæ sennilega orð á mig fyrir að vera hrokafullur dóni. Bara kúl.

Svo verður æsispennandi veður í kvöld, skafrenningur og hellings læti. Vonandi kemst ég samt á Skagann með vagninum kl. 17.45 áður en glórulaus hríð skellur á.

Megi dagurinn ykkar verða rosalega skemmtilegur og helgin ekki síður. Lofa boldfærslu á morgun eða hinn.

P.s. Fékk þetta í tölvupósti rétt áðan:
Rauði kross Íslands gagnrýnir harðlega vinnubrögð blaðamanna Morgunblaðsins varðandi grein sem birt er á blaðsíðu 16 í dag þar sem fullyrt er að Rauði krossinn hylji slóð Landsbankans í Panama. Þar er alvarlega vegið að starfsheiðri Rauða kross Íslands sem á engan hátt tengist málinu. Ekki var haft samband við Rauða krossinn við vinnslu greinarinnar.

Rauði kross Íslands hefur engin tengsl við Landsbankann varðandi sjálfseignarsjóðinn Aurora sem skráður er í eigu Zimham Corp. í Panama samkvæmt grein Morgunblaðsins. Rauði kross Íslands vísar algerlega á bug dylgjum um að Rauði krossinn hjálpi fjárfestum við að hylja slóð gegn þóknun.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.