Við Ásta lögðum af stað frá Akranesi kl. 6.15 í morgun, eins gott, það var ekki góð færð eftir alla snjókomuna og í raun hellings umferð þótt um miðja nótt væri. Við vorum þó líklega komnar aðeins fram yfir þann tíma sem hætta er á að löggan stoppi mann vegna gruns um ölvun. Samt alltaf spennandi að vera stoppuð af löggunni. Það sýnir að maður lifi spennandi lífi.
„Hvað er að frétta?“ spurði Ásta ósvífin kl. 6.16. Ég brast næstum í grát, enda sáumst við síðast um fjögurleytið daginn áður og kannski ekki margt gerst hjá heimakærri kyrrsetumanneskju á þeim tíma. Sem betur fer sagði hún ekki „Hvað segiru?“ Ég segi nefnilega sjaldnast neitt svona snemma morguns þótt ég þjáist ekki af geðvonsku. Eina sem mér datt í hug til að halda Ástu vakandi við stýrið var að tala illa um DVD-mynd sem ég hafði gert tilraun til að horfa á í gærkvöldi ... en ég hef aldrei verið sérlega hrifin af Nicholasi Cage, hvorki í harðsoðnum töffarahlutverkum né vælugrenjandi væmnisviðbjóði, hann er þó ekki alslæmur, stöku mynd í fínasta lagi. „Sjúkk,“ sagði Ásta, „ég var næstum búin að taka hana á leigu fyrir strákinn minn um daginn en leist ekki nógu vel á hana.“ Ásta trúir mér í blindni, frábært að eiga svona lærisvein. Jesssss! Nú stofna ég söfnuð, læt tilbiðja mig og get keypt mér jeppa fljótlega! Strákum fer að rigna yfir mig og ég get valið úr leikfélögum ...
Söfnuður heilagrar Guðríðar í himnaríki! Hljómar vel. Gjörið svo vel að mynda biðröð! Hver meðlimur fær stóra mynd af vinstra auga mínu og það táknar að ég mun hafa auga með yður ... ef þér tilbiðjið mig ...
Fasteignagjaldarukkunarseðillinn kom í gær ... heilmikil hækkun sýnist mér, við Ásta kvörtuðum hvor í aðra í morgun. Fyrir hverju er bæjarstjórn eiginlega að safna? Gullstöngum eða demantanámum? Láta okkur borga þrefalt gjald í strætó og hækka svo fasteignagjöldin upp úr öllu valdi! Hmmm. Hvað næst? Æ, ég var reyndar búin að gleyma því að almenningur á að borga fyrir fjármálahrunið, sorrí. Er stundum ekki alveg í tengslum við raunveruleikann!
Bloggstuð hefur ekki verið mikið undanfarið á minni, hef verið í smá kreppu- og mótmælasjokki. Ég vil bara gamla og góða 2007 aftur. Nú er löggan farin að gasa fólk sem kastar snjóboltum ... hvar var löggan eiginlega í frímínútum æsku minnar?
Óska ykkur mikillar gleði og stanslausrar heppni í dag, ekkert minna en happdrættisvinnings, daðurs frá flottu fólki og að hádegismaturinn verði betri en á sumum stöðum ... nefni engin nöfn en hér í Hálsaskógi verður einhver fiskisinfónía (hrollur). Hvað varð um steiktan fisk eða soðinn fisk? Nú er það bara reyktur fiskur, saltfiskur, nætursaltaður fiskur, plokksaltfiskur ... mér líður eins og ég sé orðin 10 ára aftur og illa við börnin í Biafra.
Hrund er að borða harðfisk við Vikuborðið. Hún er í rúmlega eins meters fjarlægð frá mér. Ég setti hálsklútinn fyrir vitin til að mótmæla en svo virkar hann svona líka vel sem gasgríma. Segið svo að lífið sé ekki dásamlegt!
Blogg
Heilög Guðríður, gas og fasteignagjöld
10:28 › 29. janúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
