Las Vatn handa fílum í gærkvöldi og fram á nótt, þorði ekki að kíkja á klukkuna þegar ég var búin en vissi innst inni að ég væri búin að vinna mér inn fyrir þessu með útsofelsi bæði laugardag og sunnudag. Leggja inn á svefnbankann. Byrjaði á henni í baði þegar Dexter var búinn og gat síðan ekki hætt ... (er reyndar fljót að lesa) og fattaði eftir á að ég hafði óvart móðgað sjálfa mig með því að taka bók með þessum titli með mér í bað.
Ástu leist ekkert á lýsingu mína á bókinni þegar við þustum áleiðis til Reykjavíkur kl. rúmlega 6 í morgun, segir líklega meira um hæfni mína til að lýsa innihaldi en bókina. Bókin er brilljant!
Í gærkvöldi var endurtekin bíómyndin Twenty Four sem á að vera brú á milli síðustu seríu og þeirra næstu sem hefst nú í febrúar. Ég hef þá kenningu að þessir þættir hafi verið ákveðinn örlagavaldur hjá Obama forseta. Í fyrstu tveimur þáttaröðunum (minnir mig) var forseti Bandaríkjanna svartur. Frábær forseti alveg, sætur, klár og geðþekkur. Hvað gerðist ekki í fyrra, svartur maður var kjörinn forseti!!?! Í nýju þáttunum er forsetinn KONA sem þýðir að kona gæti orðið forseti eftir átta ár eða svo, fer reyndar eftir handritshöfundunum, hvernig þeir láta hana standa sig. Nú er búið að sá þessarri hugmynd hjá Bandaríkjamönnum og þeim gæti allt eins dottið í hug að velja sér konu sem forseta ... og þó, nei tæplega ...
Jæja, farin að vinna. Vona að dagurinn ykkar verði frábær, æsispennandi og fullur af góðum fréttum! Veðrið er a.m.k. gott, það hvessir reyndar þegar líður á daginn.
Blogg
Sjálfsmóðgun og örlagavaldandi 24
07:43 › 26. janúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
