ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Kórdrengur og hórdrengur ...

17:32 › 24. janúar 2009

Yfirleitt eru laugardagar rólegheita- og hvíldardagar og engar skyldur, nema þá helst að hugsa hlýlega til mótmælenda á Austurvelli. Vildi að mótmælin á Skaganum væru frekar á laugardögum, ekki föstudögum því þá kemst ég ekki. Ég hef engin skylduverk á laugardögum en hef reynt að muna eftir því að hlusta á Halldór frænda og Markús á Útvarpi Sögu en þeir eru með eina fyndna útvarpsþáttinn síðan Radíus, Górillan og Tvíhöfði voru og hétu. Þátturinn stendur frá kl. 13-16 ... og ég mundi eftir honum rétt fyrir fjögur, argggg. Verið var að tala við Gunnar í Krossinum og Geira í Goldfinger en þeir voru nýlega í heilsulind hjá Jónínu Ben í Póllandi þar sem sá fyrrnefndi söng víst messu. Hlýtur að hafa verið gaman ... Rétt náði restinni af viðtalinu þar sem Gunnar og Geiri hlógu glaðlega að því að vera kallaðir kórdrengur og hórdrengur af Halldóri.
Fyrr í dag var endursýning á skemmtiþætti Loga B. Eiðssonar. Helga Braga var þar og talaði m.a. um námskeið fyrir konur, 40+, um breytingaskeiðið. Skil ekki þennan áhuga á að skella konum andlega á breytingaskeiðið 10 árum áður en flestar þeirra finna fyrir einkennum. Ég gæti ekki haft minni áhuga á þessu þótt hálft ár sé þangað til ég kemst á þennan svokallaða meðalaldur (51). Held að þegar þetta skellur á þá sé auðvelt að finna sér lesefni um þetta, ef vill. Helga er reyndar stórskemmtileg og fyndin og getur örugglega gert eitthvað skemmtilegt úr öllu.
Ég hef alltaf verið frekar löt og er enn, þess vegna er ég kannski svona lítið slitin eða lúin og skil ekkert í þessu gamalmennatali sem ég hef setið undir síðan ég varð fertug. Þetta fer vissulega eftir því hvað miðað er við. Fyrir nokkrum árum spjallaði ég við rúmlega sjötugan mann sem kallaði mig unga konu og hefði fórnað annarri hendinni til að verða 45 ára unglingur aftur, hehehhe.
Jamm, best að staulast fram í eldhús (ekki amalegt að eiga göngugrind) og fá sér sveskjugraut, svo er komið að lúr nr. 2 í dag svo ég verði nú í formi til að horfa á blessaða Spaugstofuna og síðan skemmtilegu lögin þarna í söngvakeppninni. Vona bara að erfðaprinsinn muni eftir að setja hitapoka í ruggustólinn.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?