ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Rok, verðlaun og óheppin sjónvarpsstjarna

20:46 › 23. janúar 2009

Mikið var heimilislegt að sjá Skúla undir stýri á strætó í morgun. Það var nokkuð hvasst á leiðinni, leifar af "fellibylnum" síðan í gær þegar hviður á Kjalarnesi fóru talsvert yfir 40 m/sek. Ekkert ekið frá kl. 14, skilst mér. Hringdi í Sigþóru í gærkvöldi og tékkaði á henni, hún fékk far heim, þessi elska. Sjúkk.

Tiltektardagur var í vinnunni
og lítur nú Vikuplássið út eins og sæmilega hrein skurðstofa. Samt komum við frá okkur heilu blaði í prentsmiðju í dag ... Það kom okkur gleðilega á óvart að við skyldum hreppa verðlaunin sem voru ekki af verri endanum ... Skólataska (bakpoki) full af ýmsu dóti, þar mátti m.a. finna litla espressókönnu, lítið gafflasett, meðlætisskálar, smokk (sem engin okkar vildi eiga (teprur)), unaðskrem, brúnkuklúta og Gestgjafasvuntu. Ég var að hugsa um að hirða smokkinn og sá fyrir mér að ef t.d. strætó fyki út af á martraðarstaðnum (þar sem ekið er niður í Kollafjörð), svo yrði farið í gegnum töskuna mína á spítalanum þar sem ég lægi í sakleysi mínu og daðraði við læknana og allt yrði vitlaust þegar fyndist smokkur. Líklega er þjóðin öll orðin of lífsreynd til að hneykslast yfir slíkum fundi í tösku siðprúðrar miðaldra kerlingar.

Tímaáætlunin er alveg komin í lag hjá strætó
eftir breytingarnar sl. mánudag og sagði Skúli mér að farþegum hefði fjölgað aftur í kjölfarið. Nú þurfum við bara að fá lækkun á fargjöldum. Fer aldrei ofan af því að það var svínslegt að hækka gjaldið þrefalt, ekki síst á erfiðum tímum þar sem allt fer hækkandi upp úr öllu valdi.

Gísli Einarsson, ekki bæjarstjóri, heldur sjónvarpsstjarna úr Borgarnesi, skrifaði pistil í nýjasta Skessuhorn og fjallar hann um strætó þar. Hann var óheppinn í þessarri fyrstu strætóferð sinni í 24 ár. Strætó bilaði í Hvalfjarðargöngunum og Gísli var á leið í flug! Ekki gaman. Hann sagði að það skyggði á gleði hans yfir þessu "framfaraskrefi" að sumir Skagamenn kenndu Borgnesingum um hækkunina á fargjöldum. Ég hef reyndar heyrt þetta hjá stöku farþega en ég heyrði líka í Borgnesingum sem héldu að þeir fengju venjulegan strætó, ekki öðruvísi rútuferðir með minnst tveimur skiptingum á leiðinni á rúmlega 1.100 kall hverja ferð. Mikil vonbrigði þar en þeir jákvæðustu eru þó ánægðir með að fá smálækkun frá rútufarinu og tíðari ferðir, auðvitað. Við Skagamenn getum því miður ekki talað um framfaraskref. Hvenær eru það framfarir að láta skella á sig 200% hækkun? Að sjálfsögðu kenni ég ekki Borgnesingum um það, þessum elskum.

Eins og Helgi rithöfundur sagði í morgun þá er leiðin frá Kjalarnesi í Mosó ansi dýr ... en Skaginn niðurgreiddi til fulls farið frá Akranesi til Kjalarness og tók þar að auki með farþega (fyrir Strætó bs) frá Kjalarnesi og Mosfellsdal. Strætó bs fékk allan ágóða af kortum og miðum (og peningum) sem hefur verið dágóð upphæð, enda farþegafjöldinn upp úr öllu valdi.
Nú er lítill vagn farinn að keyra nokkrar ferðir á dag frá Borgarnesi og Hvalfjarðarsveit og hittir okkur við göngin, snjallt þar sem nú höldum við áætlun. Veit ekki hvað þetta stefnumót við göngin kostar en finnst ótrúlegt að það sé það mikið að hægt sé að hækka fargjöldin svona mikið. Þetta voru strætópælingar dagins. Ég frábið mér spælingar í kommentakerfinu, það er ljótt að þrefalda fargjald á farþega á krepputímum! Enn ljótara þó að hækka gjöld á veikt fólk í heilbrigðiskerfinu.

Þvílík tilviljun að tveir ráðherrar og það sjálfir formenn beggja stjórnarflokkanna skuli hafa veikst af krabbameini. Ég vona innilega að bæði Geir og Ingibjörg Sólrún nái sér hratt og vel. En hvað er í gangi með "besta heilbrigðiskerfi í heimi" fyrst þau þurfa bæði að leita lækninga í útlöndum?

Jæja, nú er Útsvar byrjað. Ég verð að halda með Álftanesi þar sem Anna vinkona er í því liði, einnig Andri, gamall samstarfsmaður úr Ísfélagi Vestmannaeyja sumarið 74, og Hilmar Örn, gamall námskeiðskennari. Í Ísafjarðarliðinu huggulega er reyndar einn fyrrum samstarfsmaður af DV síðan í eldgamla daga, Páll Ásgeir, bróðir Hafnfirðingsins knáa úr Hafnarfjarðarliðinu, Gísla.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?