Við lifum á sögulegum tímum og frekar spælandi að hafa legið á bekknum hjá sjúkraþjálfara úti á landi kl. 13.30 á þriðjudaginn í stað þess að mæta á Austurvöll með potta og pönnur.
Leitt að lögreglumenn hafi slasast í nótt. Hér á bæ eru flestir ljósmyndararnir með rauða bletti í andlitinu eftir efnavopn (piparúða), stelpur sem strákar. Voru samt ekki uppvöðslusöm, frek, dónaleg eða sýndu löggunni ofbeldi.
Ég komst að því í dag að bankarnir rukka fólk um 5.000 kall fyrir milligöngu við að sækja um frystingu húsnæðislána, a.m.k. hjá Íbúðalánasjóði. Fólkið sjálft sækir gögnin um allan bæ og fyllir síðan út greiðslumatseyðublað. Þar sem ég vann hjá Íbúðalánasjóði veit ég að það tekur nokkrar mínútur, með öll gögn í hendi, að reikna þetta út. Djöfulli er þetta ljót aðför að fólki sem berst í bökkum, búið að missa vinnuna og reynir að halda húsnæðinu. Það væri þægilegt fyrir mig að fá lánið mitt fryst til að ég geti borgað hratt niður yfirdráttinn minn en mér dettur ekki í hug að gera það, borga ekki svona glæpsamleg gjöld sem eru ótrúlega ósmekkleg gjaldtaka. Nú kostar 6.000 kall að leggjast inn á sjúkrahús, aðför að sjúklingum. Svo kostar 5.000 kall að sækja um frystingu þótt maður sjái sjálfur um að safna gögnunum, það seinlegasta. Aðför að fólki í vanda. Ég er svo ósátt við þjóðfélagið mitt. Svo heyrði ég annað í gær sem er nú ekki jafnalvarlegt ... Hjón gerðu sér glaðan dag á fínu hóteli í desember, karlinn hafði fengið gistingu þar´í afmælisgjöf. Þegar frúin var að mála sig, en þau ætluðu í mat þarna, þá langaði karlinn til að horfa á fréttir Stöðvar 2. Hann fann ekki stöðina á sjónvarpinu á hótelherberginu og hringdi niður í lobbí. Þar var honum sagt að hann yrði að borga aukalega fyrir aðganginn að Stöð 2 ... meira að segja fréttatímann sem sendur er út í opinni dagskrá. Hann varð svo reiður að hann spurði ekki einu sinni hvað kostaði mínútan ... þannig að ég get ekki tilkynnt um það. Hehehhehe
Jamm, Ísland í dag er ekkert lamb að leika við!
Við Ásta erum að fara NÚNA á Skagann. Hviður á Kjalarnesi eru komnar upp í 35 m/sek, orðið ófært fyrir strætó en Ásta er á kagganum!!! Jesss.
Blogg
Lánafrystingarsvínarí og hvassviðri
14:33 › 22. janúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
