ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

CSI - Idol - Réttur - Þjófaborg

11:11 › 20. janúar 2009

Skrifaði þessa tímamótafærslu um sjónvarp í gærkvöldi en hún birtist í fyrradag, m.a. á Eyjan.is,  og meira að segja á undan færslunni sem ég skrifaði í gærmorgun. Mér tókst að breyta dagsetningunni, rétt skal vera rétt, Ég veit að mér myndi líða hroðalega illa ef tvær færslur væru í rangri röð á lista hinna frábæru færslna úr himnaríki.

Hér á heimilinu hefur eintómt sjónvarpsgláp
verið ástundað í kvöld og auðvitað eitthvað smá verið hugsað í auglýsingahléum.
Horfði á fyrsta þáttinn í nýrri CSI-seríu. Svo langt var síðan síðasti þáttur var sýndur að það tók smátíma að koma sér inn í málið aftur, þátturinn sá endaði alveg svakalega. Einn aðalgaurinn var skotinn og það af spilltum aðstoðarlögreglustjóra Las Vegas. Grissom og félagar eru engir aukvisar og rannsókn þeirra leiddi hið sanna í ljós. Þrátt fyrir minnisleysið þarna fyrst mundi ég illu heilli eftir því að leikarinn sem "dó" var skrifaður út úr þáttunum vegna dópvandamála. (Hann er lengst til vinstri á myndinni) "Hreinu" CSI eru bestu CSI-þættirnir, að mínu mati og CSI-Miami þeir fyndnustu þótt þeir eigi ekki að vera það. Horatio drepur mig alveg. Töffarar eru æði en fyrr má nú rota ...
Hef ekkert séð skrifað á blogginu um nýja íslenska lögfræðingaspennuþáttinn (Réttur) sem hófst í gærkvöldi á Stöð 2. Mér fannst hann ferlega skemmtilegur og Magnús (leikarinn) er miklu flottari töffari en Horatio. Við búum orðið (eftir októberhrunið) í svo miklu glæpasamfélagi, eða svo margt komið upp á yfirborðið, að þetta var allt mjög trúverðugt sem þar átti sér stað. Held að fyrsti þátturinn hljóti að hafa verið byggður á sannsögulegum atburðum ... þetta með að pína fólk með öllum ráðum til að selja íbúðir sínar ... þori ekki að segja meira til að verða ekki myrt.
Ammmríska Idolið hófst í kvöld, var frekar skemmtilegt ... en mér finnst yfirleitt, öfugt við flesta sem ég þekki, mest gaman af fystu þáttunum, þegar verið er að sigta hryllinginn frá þessu skárra. Fékk reyndar ósvífið símtal (ósvífnin fólgin í því að hringja á meðan Idolið var) en það stóð bara í 17 mínútur og var bara skemmtilegt. Hlakka enn meira til að sjá íslenska Idolið.
Jamm, blessað sjónvarpið. Annars er ég að lesa mjög góða bók.sem heitir Þjófaborg. Hún segir frá tveimur ungum mönnum í Leníngrad á tímum seinni heimstyrjaldarinnar. Þeir eru handteknir, annar, 17 ára gyðingur, fyrir að ræna hnífi frá föllnum þýskum fallhlífarhermanni, í útgöngubanni þar að auki, og hinn, ungur Rússi, fyrir meint liðhlaup. Þeir fá að halda lífi vegna þess að höfuðsmanninn sem ræður lífi þeirra og limum, vantar 12 egg í brúðkaupstertu en dóttir hans er að fara að gifta sig. Ég er tæplega hálfnuð með bókina og þrátt fyrir að þetta hljómi kannski svolítið nöturlega er þetta hin besta skemmtun, líklega af því að bókin er svo vel skrifuð. Það ríkir svo mikið hungur í Leníngrad á þessum tíma að ég hef lést um tvö kíló við lesturinn.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?