ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Leið 57- Borgarnes-Akranes-Rvík

10:33 › 2. janúar 2009

Leið 57 hóf göngu sína í dag, Borgarnes-Akranes-Reykjavík. Ég fór snemma út í morgun, stóð um stund óörugg í þrælmerktu strætóskýli mínu við Garðabraut, svo óörugg að kjarkurinn brást eftir eina mínútu og ég labbaði að skýlinu hjá bæjarskrifstofunum þar sem ég vissi að strætó myndi örugglega stoppa. Strætó kom fimm mínútum of seint ... samt var aðeins einn farþegi frá Borgarnesi, virkilega eðlileg kona. Farþegar voru komnir á stoppistöðina mína sem ég þorði ekki að bíða á og bílstjórinn hirti þá upp. Kannski helst hún inni, það væri æðislegt. 

Haukur sat undir stýri, búið að reka Skúla þar sem hann býr ekki í Borgarnesi eða Akranesi. Mikið á ég eftir að sakna hans.
Í stað þess að keyra út úr bænum í austurátt, framhjá Íþróttahöllinni, dvalarheimilinu Höfða og sætukarlastoppistöðinni (Innnesvegur) beygði bílstjórinn til vinstri hjá sundlauginni til að komast út úr bænum. Stoppistöðvarnar þar voru vonandi ekki fullar af fólki sem enginn var búinn að segja að væru ekki lengur í gangi.
Nú er aðalleiðin ekin út úr bænum (Akranesi) og ný stoppistöð kemur rétt hjá ÁTVR, skilst mér. Það er eins og allt sé reynt til að koma mér í óreglu. Léleg sjónvarpsdagskrá á nýársnótt og nú strætóstoppistöð rétt við ÁTVR. Við vorum kannski tíu sem skröngluðumst í bæinn.

Elsku Halli á leið 15 beið eftir okkur og því náði ég leið 18 upp í Hálsaskóg. Einn Indverjinn minn er enn í forritunarvinnu hjá Glitni og hann var í strætó, líka þýðandinn, þótt ég móðgaði hann með því að sjá hann ekki fyrr en við löbbuðum út úr vagninum, en hægláti maðurinn er greinilega enn í jólafríi.

Nú er eins gott að vinna ekki of lengi á föstudögum, strætó fer kl. 18.20 (ekki 18.45) og svo ekki fyrr en korter fyrir níu um kvöldið! Slæm breyting fyrir alla þá sem vinna í Reykjavík til kl. 18.

Jæja, best að halda áfram að vinna. Hér verður snitzel í hádeginu, 200 kalli dýrara en fyrir áramót, best að prófa asparssúpuna! Það er ódýrara!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.