Í morgun tók ný og betrumbætt strætóáætlun gildi hjá Skagamönnum og Borgfirðingum. Nú mun sérvagn keyra frá Borgarnesi og hitta Skagavagninn við göngin. Borgnesingar þurfa ekki lengur að hossast að óþarfa niður á Skaga þótt þeim þyki það örugglega gaman, enda fallegt á Skaganum, eins og í Borgarnesi. Lagt er af stað nokkrum mínútum fyrr en hefur verið frá Skrúðgarðinum til að bæta upp tímann sem tekur að taka upp farþega við göngin.
Annað, splunkunýtt og flott. Eitt hverfi varð algjörlega útundan við breytingarnar og missti allar stoppistöðvarnar (þrjár), eða Grundirnar á Akranesi, nýja hverfið, eins og það var lengi kallað. Á Innnesveginum var einmitt sætukarlastoppistöðin en þar komu inn heilu flokkarnir af sætum körlum á öllum aldri, sérstaklega í fyrstu ferð. Svakalegt að sú stoppistöð detti út ... EN .... Ég frétti í gær að til að koma á móts við farþegana í þessu stóra hverfi muni innanbæjarstrætó aka þar um í kringum klukkan hálfsjö hvern virkan morgun í framtíðinni og safna saman fólkinu.
Nú þarf bara bæjarstjórnin að færa okkur niður í Gjaldsvæði 2, eða í tvöfalda hækkun ... það er hægt að lifa við það, ekki þrefalda hækkun! Sorrí. Þetta snertir ekki bara þessa 300-400 manns sem taka strætó reglulega, heldur líka fjölskyldur þeirra.. Ég veit að mjög margir Skagamenn, sem hafa aldrei tekið strætó, eru samt grautfúlir yfir þessu. Því miður nýtist mér ekki að kaupa afsláttarkort, bara miða sem eru ekkert niðurgreiddir aukalega. Þrír miðar, takk fyrir hverja ferð! Ég hlýt þá að geta heimtað þrjá skiptimiða!
Stóra málið með strætókortin er komið á hreint. Þeir sem voru búnir að kaupa sér t.d. 9 mánaða kort í haust þurfa ekki að borga meira, þeir fá ný gild kort í stað þeirra. Held að þetta hafi verið niðurstaðan eftir að kvartað var til Neytendastofu. Þetta má sjá á mbl.is í dag og með fréttinni var gullfalleg mynd sem ég hikaði ekki við að ræna og setja á þessa síðu. Það sést nefnilega í himnaríki á henni en himnaríki er í blokkinnni fjærst við götuna (Jaðarsbraut), svona cirka fyrir miðri mynd og ber við Akrafjallið.
Óska ykkur annars virkilega góðs dags með von um að ekkert stórt fjármálahneyksli komi upp í dag!
Blogg
Sætukarlastoppistöðin horfin ...
08:39 › 19. janúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
