ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Karlmannslaust óvissupartí - öll sagan

13:00 › 18. janúar 2009

Kvennapartíið var mjög skemmtilegt ... þrátt fyrir danskennslu í Skrúðgarðinum. Ég dansa ekki. Nema kannski vanga í neyðartilfellum. Sjötta kvennsan í hópnum var sein fyrir, ók framhjá Skrúðgarðinum og sá hvað var í gangi. Hún ákvað að bíða þetta af sér og mætti eftir dansinn. Snjöll en missti þó af kokkteil og snittum. Ég laumaðist fram í miðjum klíðum og bað Maríu um neyðarhjálp, að hún myndi koma og biðja okkur um að hætta þessum fjandans látum. María hló kvikindislega, kom til okkar skömmu síðar og bað mig um einkadans! Danskennari hafði verið fenginn til að koma og kenna okkur þrjá ógeðslega flókna dansa með hoppum og öðrum hryllingi. Ég lifði þetta af með því að munda myndavélina við hvert tækifæri. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd var þetta skelfilega leiðinlegt ... hehehe, not. Ég get notað margar af hinum myndunum í fjárkúgunarskyni ef þannig liggur á mér.
Síðan átti að fara í heitan pott heima hjá gestgjafanum. Ég hata heita potta. Ég sagði við tvíburasysturnar knáu þegar gestgjafinn heyrði ekki til að það kæmi mér ekki á óvart þótt boðið yrði upp á hnetusteik í kvöldmat í stíl við dans og heitan pott á óvinsældalista mínum. Ekki reyndist nema ein úr hópnum, fyrir utan gestgjafann, vera með heitapottsfatnað svo ákveðið var að sleppa kvikindinu. Við sem hötum heita potta ætluðum bara að sitja alklæddar og sómasamlegar hjá hinum, spjalla og gera grín að þeim, svo það hefði samt verið í fínu lagi.
Í matinn var sko ekki hnetusteik, heldur lasagna og heldur betur gott. Tvíburarnir trylltust aftur á móti úr hlátri fyrir mína hönd þegar eftirrétturinn kom á borðið ... allur löðrandi í hnetum. Gestgjafinn bauð reyndar upp á tvo eftirrétti og hinn var algjörlega hnetumöndludöðluogrúsínulaus.
Mikið var spjallað og hlegið, gamlar minningar rifjaðar upp frá ljúfum uppvexti á Skaganum. Ég hef öðlast trú á kvennapartí aftur þrátt fyrir dans og líkur á heitum potti. Heiður að vera boðið þangað, þetta er sérstakt vinkvennapartí sem er haldið einu sinni á ári og því er mikið lagt í það með uppákomum og öðru. Gestgjafinn ætlaði að fara með okkur niður á höfn og sýna okkur innviði báts nokkurs en hann reyndist vera farinn út á sjó. Þá var danskennslunni reddað með stuttum fyrirvara. Þegar við vorum leiddar í gegnum bæinn áleiðis að Skrúðgarðinum var giskað á ýmislegt sem biði okkar. Einni datt í hug að við værum að fara heim til Tomma, bílstjóra og krúttmola, (sem býr í Lesbókinni) og að hann ætlaði að dansa fyrir okkur. Enga okkar grunaði að við þyrftum að afplána danskennslu. Svona geta óvissupartí verið spennandi. Frábærar konur og bráðskemmtilegt kvöld.
P.s. Ég tek 5.000 kall fyrir að fjarlægja meðfylgjandi mynd af blogginu.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?