ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Mötuneytisraunir, uppistand og pínubold

18:28 › 15. janúar 2009

Sofnaði með blautt hárið í gærkvöldi og olli útlit mitt í morgun skelfingu hjá samstarfsmönnum. Samt var ég búin að reyna að bleyta hárið og greiða til að vera jafnflott og venjulega. Björk var kurteis og sagði það vera svolítið klesst en Tobba hrósaði mér í hástert ... úr hæfilegri fjarlægð. Í hádeginu settist ég við borðið hjá þremur tæknimönnum Stöðvar 2. Eins og alþjóð veit þá eru þeir öllu vanir eftir gamlársdagslætin og töluðu frjálslega og alls óhræddir við mig. Þeir eru sannar hetjur, þorðu að fá sér saltfisk sem er nú á boðstólum annan hvern dag eða aðra hverja viku. Það er eiginlega alltaf saltfiskur í matinn. Ég fékk mér grænmetislasagna og voru hrísgrjón með kanilbragði inni í, nokkuð óvenjulegt en líf mitt er reyndar stöðug rússibanareið svo ekkert kemur mér á óvart lengur. Nú á t.d. að breyta leiðakerfi Vesturlandsstrætó aftur, eða lagfæra það, en tekið var fram á strætó.is að verðið, úr 240 í 840, haldist óbreytt. Verðhækkunin er reyndar það sem vakið hefur mesta óánægju og hefur valdið því að fjöldi fólks er hættur að taka strætó á milli. Er samt þakklát þeim hér á Skaganum fyrir að hafa innanbæjarstrætó gjaldfrjálsan. Nú er yfirleitt ekki hægt að fá sæti í honum, þvílíkar eru vinsældirnar. Ég reyni að bæta mér upp 200% verðhækkunina á strætó til Reykjavíkur með því að rúnta mjög oft um í ókeypis innanbæjarvagninum.

Ég sá skemmtilega heimildamynd
um daginn, Wild West Comedy Show, en Vince Vaughn leikari fór ásamt nokkrum uppistöndurum og skemmti á 30 stöðum á 30 dögum og sagði myndin frá því. Einn þessarra uppistandara var ekki sérlega frægur þá (2005) en er orðinn það núna, Ahmed Ahmed (sjá mynd) og kemur frá Egyptalandi. Mér fannst hann langfyndnastur. Hann sagði í einu uppistandinu frá ungri konu sem hafði spurt hann: „Hvaðan ert þú?“ Hann: „Frá Egyptalandi.“ Hún: „Viltu gera mig að egypsku prinsessunni þinni?“ Hann: „Já, já.“ Svo fleygði hann yfir hana  handklæði og skipaði henni að þegja.
Hann sagði líka sitt af hverju baksviðs. Hann, ásamt 10 þúsund öðrum múslimum í Bandaríkjunum, var handtekinn skömmu fyrir kosningar og látinn dúsa inni í nokkra daga. Hann var að koma fljúgandi frá einhverri borg í USA og gripinn þar, leiddur í handjárnum í gegnum flugvöllinn og voða gaman. Í reitinn þar sem stóð ÁSTÆÐA HANDTÖKU var ritað: flugvallarreglur.

Fátt fréttnæmt í boldinu
, bara verið að tala um undangengna atburði. Taylor varð ekkert brjáluð þótt hún kæmi að Brooke klofvega ofan á Nick á rúminu, berum að ofan. Hún þekkir sitt heimafólk og sálgreindi Brooke á staðnum. Þar sem Brooke veit er að nú eignast hún aldrei Nick fyrst hann og Taylor ætla að hlaða niður barni. Hún fer því og spjallar við Ridge, sáran og beiskan uppi á húsþaki. Phoebe litla og Rick spjalla líka saman, Rick er ánægður með að ekki verði af brúðkaupi móður hans og Ridge en Phoebe litla er svekkt yfir því að ekkert verði af brúðkaupi föður hennar og Brooke. Sama brúðkaupið.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.