„Arggg, hver er að nauðga Your song?“ spurði ég Ástu óvenjuhreinskilnislega klukkan rúmlega sex í morgun, þetta eltonjohn-lag er þó ekkert í sérstöku uppáhaldi hjá mér, man eftir því úr æsku með Three Dog Night (af sömu plötu og Mama told me). Spilaði það og Sound of Music til skiptis.
„Brsdsdfasdf“ svaraði Ásta með munninn fullan af latte sem ég hafði bruggað handa henni fyrr um nóttina. „HA, BRUCE SPRINGSTEEN?“ kallaði ég upp yfir mig. „Nei, Páll Rósinkrans,“ sagði Ásta móðguð, hún elskar Pál Rósinkrans en ég sá ekki hættumerkin á þessu stigi .... „Ó, sagði ég kvikindislega, „kannski af væluplötunni sem hann gerði um árið eingöngu til að græða á kellingum?“
Ég kom sjálfri mér virkilega á óvart þarna, vissi ekki að ég ætti svona viðbjóð til. Úr augum mínum skein örugglega tær illska þótt ég hefði í kjánalegu Facebook-prófi í gærkvöldi fengið hvítan lit sem minn lit. Lit hreinlyndis og heilagleika, minnir mig og Dúa dásamlega hefur hlegið úr sér augun yfir. Það er nú hægt að svindla á persónuleikaprófum. Þótt ég hafi svindlað sáralítið á aldursprófi á Facebook er ég raunverulega 38 ára samkvæmt því, ég ætla að gleyma réttum aldri mínum (uuu 43) og halda upp á 39 ára afmælið mitt 12. ágúst næstkomandi! Öllum boðið!
„Ja, mér fannst Egill Ólafs nú alltaf bestur í Þursaflokknum,“ hélt ég áfram, „og Bubbi Morthens var bestur í Utangarðsmönnum og Egó.“ Með þessu komst ég út úr mesta hættusvæðinu. „Oj bara, Þursaflokkurinn. Bubbi var nú líka góður í GCD,“ sagði Ásta sáttfús og bætti við: „Þegiðu nú, ég ætla að leyfa þér að hlusta á sálm (Hallelúja) með Páli Rósinkrans,sem syngur hann eins og á að syngja hann!“ Til að fá nú örugglega far heim seinna í dag sagði ég ekkert meira, bara lygndi aftur augunum en greip fast um handfangið á bílhurðinni til að ég fleygði mér örugglega ekki út á ferð. Þetta reyndist ekki vera neinn sálmur í poppstíl, bara rólegt, kristilegt popplag en þrátt fyrir það fór hjartslátturinn smám saman niður í eðlilegan slagafjölda á mínútu og krampakennt gripið um handfangið losnaði.
Annars bara: Góðan dag! Megi andríkið, krafturinn og og viskan verða með ykkur í dag. Megi að auki enginn spila leiðinlega tónlist nálægt ykkur ... í fyrradag var nefnilega ljótulagakeppni á milli Séð&heyrt og umbrotsdeildarinnar og tónlistin ekki sérlega lágt stillt. Held að óvænt illska mín og viðbjóðsskapur í morgun gagnvart sárasaklausum, guðhræddum en samt góðum FYRRUM rokksöngvara (sko, ég er byrjuð aftur) hafi verið leifar af þeirri reynslu.
Blogg
Tær illska og meðvitað músikmorð
09:31 › 14. janúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
