ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Tilfinningaklám og djúsí bold

11:11 › 13. janúar 2009

Meira hvað fólk getur grátið í þáttunum Extreme Makeover/Home Edition. Hönnunar- og byggingarliðið fór í þætti gærkvöldsins til fólks sem varð fyrir því óláni að flugvél ók á hús þess og það brann næstum til grunna. Eitthvað var í ólagi hjá þessu góða fólki í sambandi við tryggingamálin svo það þurfti að búa hjá vinafólki. Ég hélt að ef fólk fengi flugvél inn um eldhúsgluggann þá þyrfti það ekki að hafa áhyggjur af eigin tryggingamálum. Eitthvað loðið þarna. Eldri sonurinn var hermaður og hafði barist í Írak. Móðir hans sagði að hann hefði ekki brosað í mörg ár eftir að hann kom frá Írak. Drengurinn er 21 árs og lítur út fyrir að vera 14 ára! Hvenær hefst eiginlega herskylda í USA? Það lítur allt út fyrir að hann sé hættur sem hermaður, hvað gerðist? Getur verið að ég hafi dormað í nokkrar sekúndur og misst af því? Hermaðurinn fékk flott hermannaherbergi, felulitir á veggjum og slíkt, einnig risastóran pallbíl sem hann grét fögrum tárum yfir (jamm, bensín er dýrt). Yngri bróðirinn fékk hjólabrettaherbergi og dóttirin söngkonuherbergi í stíl við draum hennar og voru vinkonur hennar fengnar til að leika í tónlistarmyndbandi henni til heiðurs. Þegar henni var sýnt myndbandið í skjávarpanum gat hún ekki dulið spælinguna yfir því að vera ekki aðal þar. Hún hætti sem snöggvast að gráta gleðitárum. Fjölskylda hennar bætti það þó upp að mestu. Þessi þáttur nær mér stundum (þótt ég berjist gegn því) eða þegar fólk hefur átt virkilega um sárt að binda vegna veikinda, dauðsfalla ... þá eru tárin trúverðugri. Mér finnst reyndar gaman að sjá hvað hægt er að byggja flott hús á stuttum tíma, sjá "bífor og after".

Var næstum búin að missa af boldinu í gær, það er búið að flýta útsendingartímanum um hálftíma til að koma Friends-þætti inn sem síðasta atriði fyrir fréttir. Nú getur fólk sem hættir kl. 17 í vinnu ekki náð boldinu sem hefst átta mínútum síðar en það getur séð Friends-þátt í 20. skiptið. Vá, frábært. Ef ég stjórnaði á Stöð 2 myndi ég setja Friends á dagskrá kl. 17 til að boldið geti verið áfram á sama tíma og einnig Nágrannar. Þar sem ég vinn heima á þriðjudögum og er með sjónvarp í vinnuherberginu sá ég bold-þáttinn í morgun kl. 9 og sá var djúsí.
Konurnar í boldinu geta ekki verið karlmannslausar í einn dag. Brooke flaug frá Ástralíu eftir að hafa hent trúlofunarhringnum í Ridge fyrir að hafa kýlt son hennar, Rick, fyrir að hafa verið gripinn við ósiðlegar aðstæður (samt saklausar) í brúðhjónasvítunni með Phoebe litlu, dóttur Ridge, og fór beint til Nicks sem deginum áður hafði trúlofast Taylor en Taylor var gift Ridge í mörg ár og á með honum þrjú börn, m.a. Phoebe. Taylor og tilvonandi tengdó, Jackie, sátu og spjölluðu glaðlega um litla barnið sem verður vonandi bráðum í "maganum" á Taylor. Nick er aftur á móti með Brooke í fanginu og berst gegn líkamlegum ástarjátningum hennar. Hún segist hafa gert mistök, hún viti jú að Nick sé trúlofaður en þau tvö eigi að vera saman. Hún hafi fundið það í flugvélinni á leiðinni heim.
Ashley, gömul vinkona Ricks og nýr starfsmaður Forrester, er ekki hrifin af því að Rick sé að þvælast með unglingi (18) og segir honum það, segir að hann eigi skilið þetta glóðarauga sem Ridge kýldi á hann.
"Ég ætlaði að giftast Ridge á morgun, en ég á heima hjá þér, Nick, ég hef alltaf vitað það," segir Brooke tælandi. Nick hefur lært af reynslunni, þekkir þetta allt og vill ekki lenda í ástarsorg aftur, hann hikar þó í nokkrar sekúndur þegar Brooke segir stóru orðin: "I love you". Hún fór að klæða hann úr sloppnum, hann varð svo máttlaus að hann hneig niður í rúmið og Brooke ofan á, þá akkúrat kom Taylor inn úr dyrunum og spurði hvað gengi á. Tjaldið féll.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.