ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Rómó morgunn og mögulegt hneyksli í dag

07:40 › 12. janúar 2009

Í hjörtum okkar Ástu ríkti rómantíkin ein á leiðinni í bæinn í morgun. Brottför á slaginu 6.20, sem er um miðja nótt og rómantík tengist nóttunni ... en það var ekki allt og sumt. Um leið og ég settist upp í bílinn heyrðust ljúfir tónar Páls Óskars og meira að segja bragðaðist heimatilbúinn latte-inn einhvern veginn rómantískt. Ef við Ásta værum ekki þvílíkt rækilega gagnkynhneigðar og hún meira að segja á blýföstu hefði þessi stemmning getað komið okkur í æsispennandi klandur ... a.m.k. hefði ég ekki verið mætt til vinnu kl. 6.57. Tunglsljósið lýsti veginn, ásamt háu ljósunum á Ástukagga, en það var baugur í kringum tunglið sem eyðilagði stemmninguna svolítið, örugglega hneykslisbaugur sem veit á uppljóstrun í dag, enn eitt hneykslið kemur upp á yfirborðið. Spádómur dagsins er í boði mínu! Múahahahah
Jamm, vona að þessi dagur verði ykkur dásamlegur.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.