Afar ljúft og notalegt var hjá Míu systur og Sigþóri mági fyrr í kvöld. Maturinn hrein snilld. Verst að ísinn á eftir var með núggati en ég trylltist ekkert, enda lífsreynd eftir að hafa fengið Toblerone með hnetum og rúsínum frá Ástu fyrir að hafa passað hundinn hennar á dögunum. Búið að eyðileggja bankakerfið, Toblerone-ið, Makkintossið, strætókerfið, þetta fer alveg að venjast.
Eftir Stöðvar 2 annálinn drifum við okkur heim, enda útsýni með afbrigðum gott yfir til höfuðborgarinnar sem logaði öll. Akranes ljómaði líka fallega, mikið skotið upp hér. Eftir að hafa horft á flugeldana, lesið Moggann og flett í gegnum völvuspá Vikunnar gerði ég það sama og undanfarin gamlárskvöld síðan 1986 þegar ég hef ekki nennt að fara að sofa og ákvað að kíkja á sjónvarpið. Eitthvað rámaði mig í að það yrði sýnd eldgömul ævintýramynd, Jewel of the Nile ... það skársta sem ég fann, en skv. fyrri drögum dagskrár sem ég sá fyrir tveimur vikum átti hún að vera miklu fyrr á dagskrá. Nennti ekki að horfa á Mít the Fokkers enn og aftur, sem var troðið á undan, ekki heldur Spiderman einu sinni enn og ekki er langt síðan Stephen King myndin á Bíórásinni var sýnd. Það þýðir ekkert að segja við mig að ég eigi að fara í partí og djamma,
mér finnst slíkt yfirleitt ofboðslega leiðinlegt þótt ég sé annars sæmilega félagslynd.
Hef árum saman verið ósátt við, fyrir mína hönd og annarra sem ekki nenna að djamma á nýársnótt eða eiga sér ekkert líf, að endursýndar myndir séu á dagskrá þessa nótt, finnst það óvirðing við okkur sem heima sitjum. Talaði við mann á annarri stöðinni og sá sagði að allir, a.m.k. langsamlega flestir, "skemmtu sér" þessa nótt og því þyrfti ekki að leggja í einhver fínheit ... æ, hann orðaði þetta kannski ekki svona en mér tókst ekki að sannfæra hann um að foreldrar, gamla fólkið, fólk eins og ég ... eflaust mörg þúsund manns, værum bara heima og það væri frábært að fá eins og eina góða mynd til að horfa á fyrir svefninn. Hef lesið tryllingslega mikið í tvo mánuði og væri til í eitt sjónvarpskvöld/-nótt.
Ég lýsi því þó yfir að ég lendi í óreglu á nýársnótt í framtíðinni kenni ég sjónvarpsstöðvunum algjörlega um það.
En hva ... Gleðilegt nýtt ár! Megi árið færa okkur Íslendingum nýja ríkisstjórn, nýtt fjármálaeftirlit, betri sjónvarpsdagskrá næsta gamlárskvöld og ekki síst ... mýkingarklúta í þurrkara.
Blogg
Sjónvarpsefni á nýársnótt ...
03:35 › 1. janúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
