ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Löng bið og svo kom rútan (smábold líka)

10:42 › 9. september 2008

Við komuna til Íslands Við Inga vorum orðnar ansi framlágar
í nótt að ganga þrjú þegar rútan ók loksins upp að húsinu. Afar þreytt
fjölskylda kom út úr rútunni og gekk í fylgd okkar inn á nýja heimilið.
Þreytan var svo mikil að ég laumaði bara niðurskorna álegginu inn í
ísskáp aftur, engin hafði lyst á neinu. Vona að heita súkkulaðið hafi
enn verið volgt í brúsanum í morgun fyrir börnin. Við sýndum okkar konu
það helsta og buðum svo góða nótt. Sem betur fer talar hún einhverja
ensku. Hún er virkilega geðþekk og minnir mig bara á dugnaðarlega,
íslenska móður sem hefur góða stjórn á börnum sínum sem voru svo þæg
... og sæt! Strákarnir eru 11 og 9 ára og mjög líkir í útliti, við
héldum lengst af í aðdragandanum að sá yngri væri 5 ára og ætti 6 ára
afmæli í dag en hann á 9 ára afmæli í dag.

Syfjuð Inga Kristinn og Inga Mikið vona ég að þau öll fái góðar móttökur
á Íslandi, þau hafa nógu lengi verið óæskilegar persónur í Írak og eru
ekki velkomin til yfirfullra nágrannalandanna, hvað þá heim til
Palestínu. Við munum hitta flóttakonurnar okkar í dag og þar verða líka
staddir túlkar. Þótt við höfum getað átt tjáskipti í nótt þá er frábært
að geta komið ýmsum hlutum á hreint. Í dag verður t.d. lokið við að
tengja gamla sjónvarpið, sem kom um 11 leytið í gærkvöldi og
þvottavélina. Það vantar vissulega milljón hluti, eins og t.d. körfu
undir óhreina þvottinn, en þetta verður bara svona og ég átti t.d. ekki
slíka körfu þegar ég fór að búa. Af augnaráði „okkar konu“ í nótt
sýndist mér að henni fyndist allt gjörsamlega fullkomið og meira en það.

Kristinn, sem er að gera heimildamynd
um komu flóttakvennanna, hjálpaði okkur Ingu við að loka gatinu á
eldhúsinréttingunni þar sem uppþvottavélin var hjá fyrri íbúa, við
negldum hreinlega efnisstranga fyrir og eldhúsið gjörbreyttist.

Ásta fór á fundinn vegna Sementsverksmiðjunnar í gær og var mjög ánægð með hann. Get spurt hana betur út úr næsta mánudagsmorgunn þegar sumarfríinu lýkur.

Gömul mynd úr boldinu Margt dramatískt hefur gengið á í boldinu
undanfarið. Stefanía er í vondum málum þótt hún hafi ekki hrint Jackie,
mömmu Nicks, niður stigann en systir Brooke sýndist hún hafa séð hana
gera það. Jackie og Steffí hatast og þetta var glæsilegt tækifæri fyrir
Jackie að hefna sín. Með hjálp Nicks, sem syrgir brottför Brooke úr
hjónabandinu í fangið á Ridge (enn einu sinni), kúgar hún
Forrester-tískufyrirtækið út úr fjölskyldunni. Stefanía tryllist þegar
hún kemst að því og gleymir að vera þakklát fyrir að fjölskyldan vildi
bjarga henni úr fangelsi með þessu. Brooke sefur loks hjá Ridge og
þakkar honum fyrir að hafa stöðugt reynt við hana á meðan hún var gift
Nick, fyrrum tengdasyni sínum. Dóttir Brooke, hún Bridget, viðurkennir
í hjarta sínu að hún elski enn Nick, fyrrum mann sinn og núna síðast
stjúpföður. Þau eiga örugglega eftir að ná saman ... en líklega ekki
fyrr en hann er búinn að vera með Taylor, fyrri konu Ridge og mömmu
tvíburanna og Tómasar, og eignast með henni barn sem reynist fyrir
mistök dr. Bridgetar vera úr eggi Brooke ... ef kristalskúlan (Netið)
mín lýgur ekki.

Sigur Nicks, eða
að ná Forrester-fyrirtækinu, er ekki jafnsætur og hann vonaði því að
Brooke, sem var að yfirgefa hann, vill ekki taka þátt í svona hefnd og
selur honum eigin hlutabréf í fyrirtækinu. Bara sjokk.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?