ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Nýtt hótel, sjónvarpsstjarna og fyrirhugaðar móttökur

17:36 › 8. september 2008

Hótel LaxnesSamstarfskona mín skutlaði mér í Háholt eftir vinnu á föstudaginn og þannig gafst
tími til að kíkja á nýja hótelið sem var að opna rétt við stoppistöðina mína, Hótel
Laxnes. Fékk boðskort í opnunina og fannst voða gaman að geta kíkt þótt það
væru bara í 10 mínútur. Þetta var mjög flott og næst þegar skellur á brjálað
veður og strætóbílstjórarnir væla: „Vindhviðurnar eru 40 m/sek á Kjalarnesi, snökt,
snökt, við förum ekki,“ þá verður hægt að gista þarna og hafa það virkilega
gott. Tala nú ekki um ef maður getur gripið sætan karl af stoppistöðinni með sér
... múahahahaha, ókvæntan að sjálfsögðu, ég er dama! (Myndin er stolin af öðru bloggi, sorrí glamour-lady)

AkranesÍbúafundur hófst núna kl. 17 í dag í Bæjarþingsalnum á Akranesi um
starfsleyfi Sementsverksmiðjunnar. Það verður án efa fjörugur fundur, enda
margir mjög á móti því að leyfið verði endurnýjað. Ekki séns að fara þótt ég
hafi heilmikinn áhuga á að kynna mér málstað beggja aðila.

Heyrði í Shymali, indversku vísindakonunni minni sem var alltaf
samferða mér í strætó, en hún vinnur hjá Rauða krossinum núna. Hún segir að
barnasængurnar komi í dag og þar með létti af mér stærsta áhyggjuefninu. Shymali
og Anna Lára hjá RK hafa ótrúlega mikla yfirsýn. Ein stuðningskonan sagði í gær
að það vantaði dýnu í barnarúmið sem hún var með. „Talaðu við Ingu eða Gurrí, þær
eru með aukadýnu,“ og konan kom í gærkvöldi og sótti dýnuna. Sumir þola ekki að
vinna undir álagi en þessar tvær hafa sýnt að það er hægt að hlæja og hafa
gaman þótt mikið sé að gera. Mikill heiður að fá að taka þátt í þessu verkefni
með þeim.

BorgarnesStuðningsfjölskyldurnar
koma líka úr Hvalfjarðarsveit og Borgarnesi
, a.m.k. ein úr Reykjavík, og vegna
fjarlægðar eru þær vissulega óvirkari en samt ... einn í þeim hópi er meira að segja
talandi á arabísku sem er bara snilld. Svo ætlar hún Amal, the Palestínukona á Íslandi,
að flytja á Skagann í heilt ár til að vera konunum innanhandar. Þessar elskur
verða farnar að borða þorramat áður en við vitum af! Hehehehe ...

Viðbót: Ísskápur er kominn, barnasængin líka, búið að búa um rúmin
og sækja meira punt sem elsku Habitat gaf. Inga er að sækja matvöruna í Einarsbúð núna
og þá verður hægt að gera eitthvað af viti matarkyns handa fólkinu okkar í kvöld/nótt
þegar það kemur. Maður finnur sér alltaf eitthvað til að hafa áhyggjur af ... núna
er það gatið þar sem uppþvottavélin var, hvað er hægt að setja þar ... arggggg!

Gísli EinarssonÉg fékk upphringingu frá bæjarskrifstofunum áðan og í framhaldinu kom
Gísli Einarsson, the vestlandssjarmör, og myndaði íbúðina „okkar“. Ef vel tekst
til með fréttina þá ætti Þröstur bloggvinur að sjást en hann kom um sama leyti
með tandurhrein sængurfötin og svo auðvitað tuskudúkkurnar og bangsana eftir
hreinsunina. Því var öllu hrúgað í barnarúmið hjá litlunni og myndað en megnið
af því fór reyndar ofan í poka aftur og verður dreift til fleiri barna. Býst
við að þetta komi í fréttum RÚV klukkan sjö í kvöld. Vil sérstaklega taka fram að
sjónvarpsvélar bæta a.m.k. 20 kílóum á sumt fólk og sumt fólk blaðrar þvílíkt
þegar það er stressað þótt það líti út fyrir að vera rólegt og kemur ekki
helmingnum að sem það langar til að segja ...

Kannski ekki alveg svona ...Mér líst mjög vel á móttökuathöfnina sem verður í kvöld/nótt. Tveir sjálfboðaliðar
um hverja fjölskyldu munu bíða á tröppunum og bjóða fjölskylduna velkomna,
afhenda konunni lyklana, fara með henni og börnunum inn í íbúðina og gefa þeim
hressingu, sýna þeim það allra helsta og leyfa þeim svo að fá frið. Finnst
þetta frábær hugmynd hjá Rauða krossinum. Svo verður móttaka á morgun þar sem
við getum spjallað við okkar fólk með aðstoð túlka, þá getum við t.d. spurt
hvort við eigum að færa einhver rúm milli herbergja, hvað vanti og hvað þær
vilji mikla aðstoð frá okkur. Mín kona sér út á hafið, svona á milli húsanna,
og úr hinum enda íbúðarinnar sést í Akrafjallið, bara gaman.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?