Um næstu helgi verður árgangsmót
á Skaganum. Um 110 krakkar eru í þessum stórkostlega Akranes-árgangi
1958 sem hefur sannarlega haft áhrif út um allan heim. Bréf voru send
út með góðum fyrirvara og SMS tvisvar til að fylgja því
eftir. Um 30 manns sjá sér fært að mæta. Veit ekki um afdrif þessara 80
sem ekki ætla að koma, held að þau séu sprelllifandi en þjást kannski
af ellifjarsýni og heyrnardeyfð fyrst þau gátu hvorki lesið bréfið né
heyrt SMS-in koma.
Þegar ég sá listann yfir þessa 30
tók ég reyndar eftir því að þetta verður kvöld fallega fólksins. Fyndið
hvernig sætustu strákarnir og stelpurnar höfðu óafvitandi tekið sig
saman og ákveðið að mæta á þetta árgangsmót.
Þegar 7 ára bekkurinn minn
flutti ljóð í Bíóhöllinni var það myndað, enda stórkostlegur atburður.
Einhverra hluta vegna er ég frekar dræsuleg á myndinni, eða í
langstysta kjólnum. Um svipað leyti reyndi bekkjarbróðir minn að kyssa
mig undir teppi niðri á Langasandi. Óafvitandi hef ég sett þetta í
eitthvert samhengi og hef alla tíð verið afar siðsöm. Læt mér t.d.
nægja að horfa á Langasandinn.
Maturinn
kemur frá hinum virta og stórkostlega matsölustað Galito og ég ætla
rétt að vona að hann verði ekki með hnetum, möndlum, döðlum eða rúsínum
... hef ekki pantað hjá þeim síðan ég bað um furuhnetulaust salat með
tandoori-kjúklingnum og fékk bara pecan-hnetur óumbeðið í salatið í
staðinn. Já, og svo leyfir maður sér engan munað lengur.
Nú vantar mig
(af sérstökum ástæðum) eitthvað skemmtilegt um árið 1958. Veit bara að
Harry Belafonte var í miklu stuði á þessum tíma. Ár var í að
Barbie-dúkkan kæmi til sögunnar (ég átti Tressí-dúkku) og þrjú ár í að
George Clooney fæddist. Lumið þið á einhverju?
Hitti undirbúningsnefndina
á fundi í Skrúðgarðinum seinni partinn í gær. Komst að því að kennarinn
okkar í 10 ára bekk treysti sér ekki til að kenna okkur aftur af því að
við vorum svo óþekk! Í minningunni vorum við algjör englabörn þannig að
þetta hlýtur að vera misminni í Siggu og Gauju. Þetta var samt
bekkurinn sem tók því illa ef einkunnir okkar voru undir 8 og enduðum
flest sem stjarneðlisfræðingar. Alla vega Gulli.
Mikið hlakka ég til á laugardaginn.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
