Um næstu helgi verður árgangsmót á Skaganum. Um 110 krakkar eru í þessum
stórkostlega Akranes-árgangi 1958 sem hefur sannarlega haft áhrif út um allan
heim. Bréf voru send út með góðum fyrirvara og SMS tvisvar til að fylgja
því eftir. Um 30 manns sjá sér fært að mæta. Veit ekki um afdrif þessara 80 sem
ekki ætla að koma, held að þau séu sprelllifandi en þjást kannski af ellifjarsýni
og heyrnardeyfð fyrst þau gátu hvorki lesið bréfið né heyrt SMS-in koma.
Þegar ég sá listann yfir þessa 30 tók ég reyndar eftir því að þetta verður
kvöld fallega fólksins. Fyndið hvernig sætustu strákarnir og stelpurnar höfðu óafvitandi
tekið sig saman og ákveðið að mæta á þetta árgangsmót.
Þegar 7 ára bekkurinn minn flutti ljóð í Bíóhöllinni var það myndað, enda stórkostlegur atburður.
Einhverra hluta vegna er ég frekar dræsuleg á myndinni, eða í langstysta kjólnum.
Um svipað leyti reyndi bekkjarbróðir minn að kyssa mig undir teppi niðri á
Langasandi. Óafvitandi hef ég sett þetta í eitthvert samhengi og hef alla tíð verið afar siðsöm. Læt mér t.d. nægja að horfa á Langasandinn.
Maturinn kemur frá hinum virta og stórkostlega matsölustað Galito og ég ætla rétt
að vona að hann verði ekki með hnetum, möndlum, döðlum eða rúsínum ... hef ekki
pantað hjá þeim síðan ég bað um furuhnetulaust salat með tandoori-kjúklingnum
og fékk bara pecan-hnetur óumbeðið í salatið í staðinn. Já, og svo leyfir maður
sér engan munað lengur.
Nú vantar mig (af sérstökum ástæðum) eitthvað skemmtilegt um árið
1958. Veit bara að Harry Belafonte var í miklu stuði á þessum tíma. Ár var í að
Barbie-dúkkan kæmi til sögunnar (ég átti Tressí-dúkku) og þrjú ár í að George
Clooney fæddist. Lumið þið á einhverju?
Hitti undirbúningsnefndina á fundi í Skrúðgarðinum seinni partinn í
gær. Komst að því að kennarinn okkar í 10 ára bekk treysti sér ekki til að
kenna okkur aftur af því að við vorum svo óþekk! Í minningunni vorum við algjör
englabörn þannig að þetta hlýtur að vera misminni í Siggu og Gauju. Þetta var
samt bekkurinn sem tók því illa ef einkunnir okkar voru undir 8 og enduðum
flest sem stjarneðlisfræðingar. Alla vega Gulli.
Mikið hlakka ég
til á laugardaginn.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
