ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Kaupmannskoss, smitandi gen, Stormsker hættur? og fl. o.fl.

19:42 › 3. september 2008



Erna kaupmaður á milli Elínar og BogguFór með erfðaprinsinum í Einarsbúð í dag og kyssti kaupmanninn fyrir
afmælisgjöfina sem hinn kaupmaðurinn, eða frúin, færði mér þegar hún mætti í
veisluna. Vildi að kossinn hefði greitt matarreikninginn líka en þá hefði ég líklega
þurft að senda mömmu. (Hún mamma kemur í
bæinn bráðum og borgar skuldina mína
... tra la la) Það var ansi gott að
komast aðeins út á meðal fólks en ég hef bara hitt krakkann og kettina síðan í
sjúkraþjálfuninni í gær og erfðaprinsinn er alltaf í skólanum. Í Einarsbúð
hitti ég gamla skólasystur (50) sem ég reyndi mikið að fá til að mæta í reunion
sem verður 4. október nk. fyrir árganginn okkar. Hún sagðist vera lítill
djammari og ég sagðist vera lítið skárri, eða fjarskalítið drykkfelld, en maður
mætir nú til að hitta þessar elskur úr barnaskóla. Þó ekki væri nema bara til
að vita hverjir eru fráskildir, fjárglæpamenn, forstjórar eða fúsir (til í
tuskið) ... Þetta síðasta er nú bara grín. Ég held að ég sé alvarlega smituð af
þessu geni sem er eignað karlmönnum (Pétri pan) og fer hátt í fréttum núna.
Hitti Þröst Unnar bloggvin og gat aðdáunarlega stillt mig um að biðja hans þrátt
fyrir að hann brosti ógurlega sætt til mín.

FlóttamannabúðirVinnufundur verður hjá Rauða krossinum í kvöld. Við Inga Ó., kona úr Rvík og hjón
af Skaganum sem ég hitti í kvöld, verðum stuðningsfjölskylda þriggja barna móður
sem á 10 ára og 8 ára stráka og 3ja ára stelpu. Við Inga fórum í íbúð „okkar
konu“ á laugardaginn og gerðum hana ógurlega kósí með lömpum og ýmsu punti sem
Skagamenn og fleiri hafa gefið. Eldhúsklukka komin upp á vegg, nokkrar tupperware-dollur
inn í skáp, punt í hillusamstæðuna, gardínur fyrir rimlagardínulausa gluggann
og fleira. Ég fann líka nýlegar og gamlar barnabækur í himnaríki, m.a.
myndskreyttar orðabækur, eina síðan erfðaprinsinn var lítill, og slíkar bækur
eru víst algjör fjársjóður þegar læra á íslensku eða til að hafa samskipti.

Þetta verður bara
gaman
en stuðningurinn á að vera fólginn í því að vera til staðar, kíkja í
heimsókn, hjálpa til við innkaup, kenna á staðinn og slíkt. Mikið verður frábært
fyrir konurnar að sleppa úr þessum lífshættulegu flóttamannabúðum en Ísland er
fyrsta landið sem býðst til að taka fólk þaðan. Fólkið í búðunum er alls ekki
velkomið til heimalandsins Palestínu eða nágrannalandana. Vonandi fylgja fleiri
lönd fordæmi Íslendinga og bjóða fólkinu heimili.

Vitlaust veðurVerst að konurnar
fluttu ekki hingað í vor og upplifðu yndislega sumarið okkar svona áður en skammdegið
skellur á af fullum þunga. Þótt ég elski skammdegið og líka vond veður er
ekki þar með sagt að aðrir geri það.

Vinkona mín í
Reykjavík, sem hefur fúnkerað sem „eiginmaðurinn“ í lífi mínu síðan 1983, er
afar handlagin og er búin að bjóðast til að skipta um klær á rafmagnstækjum
(lömpum o.fl.) þar sem svokallað ammrískt rafmagn er í íbúðinni. Það er alla
vega ódýrara en kaupa mörg millistykki.

Ætlaði að hlusta á Miðjuna, þátt Sverris Stormsker, í dag en annað
hvort er hann hættur á Útvarpi Sögu eða á tónleikaferð um heiminn. Þurfti að
afplána óhljóðin í Halldóri frænda í staðinn. Hann sér líka stundum um símatíma
stöðvarinnar kl. 11-12 ... við óvinsældir einhverra í morgun.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?