ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Stjórnin að falla? Afnám verðbóta? Ljúft að láta sig dreyma ...

08:21 › 29. september 2008

Sjá þessar dúllurMest spennandi fréttin í dag er þessi um leynifund helstu ráðamanna þjóðarinnar fram á nótt. Verður nú hlustað á háværa rödd almennings? Á kannski að afnema hinar ósanngjörnu verðbætur sem eru að sliga Íslendinga og viðgangast hvergi annars staðar í heiminum? Eða á bara að redda bönkunum enn einu sinni? Ég er hrikalega óhress með stöðu mála, tók á engan hátt þátt í uppsveiflunni með því að taka LÁN fyrir neyslu og/eða óþarfa, lán sem ég hefði reyndar þurft að borga af okurvexti og verðbætur. Slepp þó ekki við að taka þátt í niðursveiflunni frekar en aðrir. Óþolandi þegar mér er sagt af stjórnmálamönnum, sem sumir hverjir eru ekki í nokkrum tengslum við raunveruleikann (Pétur Blöndal?), að kreppan sé óráðsíu minni að kenna.Í nýjustu Vikunni er stutt viðtal við Gunnlaug stjörnuspeking. Þar segir hann m.a.: „Geir H. „Horfinn“ er formaður Sjálfstæðisflokksins, flokks sem vill ekki að stjórnvöld skipti sér of mikið af fólki. Ingibjörg (Sólrún) er formaður félagshyggjufólks sem segist vilja berjast fyrir fólkið í landinu en gerir ekki. Reiði almennings mun því frekar beinast að henni. Hún er áhrifagjörn þótt hún sé sterkur karakter. Hún á eftir að lenda í kaldri raunveruleikasturtu nú í október. Hún verður að vakna ... ... Það mun hrikta í stoðum ríkisstjórnarinnar og hún falla í október eða í síðasta lagi næsta vor.“ Vildi bara deila þessu með ykkur. Fékk óvænt far í morgun og stimplaði mig inn sjö mínútur yfir sjö hér í Hálsaskógi! Fylltist áhyggjum af strætó sem við mættum ekki í Kollafirði, strætó sem ég hefði ella tekið kl. 7.40. Bilun ... seinkun ....  eða kannski sjónleysi mitt? Strætó frá Akranesi er þéttsetin á þessum tíma og við troðfyllum síðan leið 15 í Mosó þannig að Mosóbúarnir þurfa að standa alla leiðina í bæinn.Nóg var að gera í alla nótt ... flóð eða aðrar hörmungar voru yfirvofandi ... en við komumst nokkur yfir skip, líklega gömlu Akraborgina, og tókst að bjarga okkur. Fjöldi fólks lét lífið í þessum draumi ... Líklega martröð vegna sífelldra heimsendafrétta af efnahagsmálum.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?