Á þessum tímum sviptinga í fjármálageiranum væri
frekar gaman að hafa aðeins meira vit á fjármálum landsins (hverjir eiga
hvað) og því ómetanlegt að geta kíkt á fréttavefina. Hakk og spagettí
var snætt í hádeginu, með góðri lyst eftir að tómatsósu var bætt út í,
en umræðurnar tengdust bara tíðindum morgunsins og sitt sýndist
hverjum. Kalla sænska fannst t.d. ómögulegt að hafa kindahakk blandað
saman við nautahakkið, Elín benti á að tómatsósan breytti bragðinu til
hins betra og Björk pældi í því hvort Stoðir og Stoðir Invest væri sama fyrirtækið. Ég horfði bara með aðdáun á þetta gáfaða fólk, lærði og þagði.
Blogg
Spakk og hagettí ...
14:26 › 29. september 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
