ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Yndisþokka úthýst

11:49 › 28. september 2008

Búið er að finna nýtt Skagafólk í Útsvar. Máni, snillingur og múmínálfaviskubrunnur, heldur áfram og Þorvaldur svo
bætast tvær mannvitsbrekkur við, Þorvaldur Þorvaldsson er annar þeirra,
man ekki hver sá þriðji verður. Taka á þessa keppni með trukki og þá
þýðir ekkert að velja keppendur eingöngu eftir útliti, eða kvenlegum
yndisþokka með dassi af visku um póstnúmer Íslands og Oliver Twist,
eins og gert var sl. vetur. Þorvaldur er náttúrlega bara snillingur,
gáfnaljós og góður húmoristi. Þegar ég var nýbúin að eignast
erfðaprinsinn og lá á fæðingardeild Sjúkrahúss Akraness kom hann í
heimsókn ... í pabbaheimsóknartímanum. Á þessum tíma (aldri) vildi ég
að allt væri eins og það ætti að vera (kvaldist t.d. yfir því að aðrar
konur á stofunni hefðu eðlilega fengið blóm frá eiginmanninum en ég
ekki ...) og Þegar fegurðin ríkti í Útsvari spurði
Þorvald hvort hann vildi virkilega missa mannorðið með því að mæta í
PABBA-tímanum. Það drundi í Þorvaldi: „Er ekki fínt að fá bæði
eiginmanninn OG barnsföðurinn?“ Rétti pabbinn gekk inn á stofuna
akkúrat þarna og hafði lítinn húmor fyrir þessu. Mér fannst þetta pínku
fyndið þótt ég léti ekki á neinu bera en enn fyndnara eftir því sem á
leið.

Mikið verður gott að sitja í stofunni heima
og horfa og vita fleiri svör, finnst alltaf jafnfyndið hvað
vísbendingaspurningarnar eru léttar heima en ofboðslega flóknar í
stressinu í sjónvarpssal. Ekki gekk heldur að láta mig mögulega keppa
við Álftanes og stefna þar með rúmlega 20 ára vináttu okkar Önnu í
stórhættu ... hehehe. Áfram Akranes!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?