ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Hvolpamyndir, Háholt afhjúpað, bloggpælingar og boldspælingar

19:56 › 26. september 2008



Stoppistöðvarnar í Háholti, MosóDagurinn hélt bara áfram að vera góður.  Klara
á símanum bauð Mosó-skutl kl. 17 og innan skammst stóð ég að stoppistöðinni í
Mosó og beið eftir Skúla ... í klikkuðu roki. Háholtið er á sérstöku (ó)veðurbelti,
ég er löngu búin að uppgötva þennan vindstreng sem liggur eftir því þrátt fyrir
sjúklega gott veður annars staðar í bæjarfélaginu. En hva, íslenskt eðalkvendi
lætur ekki smá rok slá sig út af laginu. Rétt fyrir kl. hálfsex var bankað í skýlið.
Fyrir utan og aftan stóð maður af sætukarlastoppistöðinni og bauð mér far.
Konan hans hafði átt erindi til höfuðborgarinnar og gat ekki hugsað Ungt og leikur sérsér að láta
karlinn sinn taka strætó heim þar sem hún var á ferðinni. Góð kona. Skemmtileg heimferð og mikið spjallað. Þegar
við rúlluðum út úr göngunum norðanmegin giskuðum við á að strætó væri nákvæmlega
þá að leggja af stað frá Háholtinu en Skagastrætó þarf að bíða eftir leið 15
sem er stundum sein á þessum tíma. Staðan eftir daginn er 1:1. Leið 15 beið
nefnilega eftir okkur í morgun. Svona sér lífið nú um að viðhalda jafnvægi og réttlæti.

Ég er að lesa nýja bók núna, Petite Anglaise, sem fjallar um breskan kvenkynsbloggara
í París. Hún bloggar undir dulnefninu Petite Anglaise og segir opinskátt frá lífi
sínu, frá froskinum (sambýlismanninum), körtunni Við viljum koma INN(barninu), eldheitu ástarsambandi
við landa sinn, leiðindin í vinnunni og fleira og fleira. Bókin er skrifuð á
hefðbundin hátt, ekki eins og blogg. Ég er ekki komin langt í henni en strax búin
að ákveða að skrifa sjálf einstaklega opinskátt um eldheitt ástarsamband sem ég
ætla að koma mér fljótlega í (tillögur óskast),
æsispennandi strætóferðirnar eins og þær eru í raun og hætta að draga nokkuð
undan, breyta yfir í dulnefnið Skagaskvísa og nú verður meira stuð í bloggheimum.

Bold: Mamma Stefaníu komin til hennar og biður um fyrirgefningu. Henni finnst
ömurlegt að hafa ekki tekið þátt í lífi dótturinnar sl. 30 ár og fengið að
njóta barnabarnanna, barnabarnabarnanna og barnabarnabarnabarnanna, held ég.
Stefanía ætlar að horfa fram á veginn, vill ekki sjá að eiga í sambandi við móður
sína sem varði hana ekki fyrir vonda pabbanum. Móðir hennar grátbiður hana en Stefanía segir henni að yfirgefa svæðið.
Pam, systir Harðfisk takkStefaníu, styður bugaða móður þeirra á brott. „Það er of seint,“
segir Stefanía skömmu seinna við Feliciu, dóttur sína.

Taylor geðlæknir
er búin að rugla Nick
í ríminu og hann hugsar allt í einu voða mikið um sálarflækjurnar
sem virðast hrjá hann og hann hafði ekki áður fundið fyrir. „I love therapy,“
segir hann og heimtar að þriðji tíminn fari fram á þilfari báts hans með bjór í
annarri og kjúklingavængi í hinni. Taylor þarf nú að fara að passa sig, persónutöfrar
Nicks eru farnir að hafa áhrif á hana og hún sem er nýfarin að sofa hjá
ekklinum Thorne.

P.s. Myndskreytingarnar í færslunni tengjast m.a. ferðinni á Kjalarnesið í gær þar
sem labrador-hvolparnir voru heimsóttir. Myndin úr Háholti, 270 Mosó, sýnir
strætóskýlin sem spila svo stóra rullu í lífi mínu. Það græna vinstra megin er
fyrir farþega til Reykjavíkur, það ósýnilega úr glerinu hægra megin er fyrir
farþega til Akraness. Við förum út hægra megin á morgnana, hlaupum yfir götuna
og náum leið 15 í bæinn hjá því græna. Svo er hérna mynd af Ylfu Ósk Úlfarsdóttur sem bíður spennt eftir harðfiski. Hún er kannski hvolpafull og þarf mögulega að borða fyrir níu.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?