ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Heillatrefill og skiptimiði í stíl, hviður og kósíheit

10:29 › 26. september 2008

TrefillÉg VISSI að þessi dagur yrði góður þegar Skúli rétti mér appelsínugulan skiptimiða, alveg í stíl við trefilinn minn. Þrátt fyrir gífurlegar vindhviður á leiðinni, bæði á Kjalarnesi og Kollafirði, fukum við ekki út af, sem er eitt dæmið, og þegar við skriðum inn í Mosó pínku sein beið Haraldur almáttugur viljandi þar eftir okkur á leið 15 þótt hann hefði alveg getað verið farinn, sem er annað dæmi. Í Ártúni stökk einn Indverjinn minn (þessi sem ég kynntist fyrst) út úr vagni neðan úr bæ og ég tók eftir að hann var í leðurjakkanum sínum, hann hefur ekkert hlustað á móðurlega aðvörun mína í gærmorgun þegar ég sagði: „Bad, bad weather tomorrow.“ Man reyndar eftir því síðan í gamla daga að leðurjakkinn minn var MJÖG hlýr, dugði mér sumar sem vetur. Þykkt og gerð trefla skar úr um hvort ég yrði úti í frostinu eður ei.labrador-hvolpurÍ gær eftir vinnu fórum við tvær vinkonur á Kjalarnesið og skoðuðum hvolpana hjá Labrador-fjölskyldunni minni. Þeir eru orðnir ótrúlega skemmtilegir, mikill leikur í þeim og lífsgleði, fáránlega sætir og krúttlegir. Ef ég byggi ekki í blokk ... ef ég ætti ekki ketti ... ef ég ynni ekki úti allan daginn ... jamm, ekki spurning! Það er hálfur mánuður í að þeir megi fara til nýrra eigenda og helmingurinn hefur þegar „gengið út“. Þannig að ... ef ykkur langar í labrador-hvolp, hreinræktaðan og guðdómlegan, þá veit ég um nokkra á lausu. :) Set inn myndir af þeim í kvöld.Óska ykkur skemmtilegs og gleðilegs dags í sífellt minnkandi rigningu og roki. Um hádegi verður komið logn í Reykjavík, skv. norsku veðursíðunni, www.yr.no.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?