Rifjasteik með brúnni sósu, steiktum kartöflum, rauðkáli og salati að eigin vali var í matinn í hádeginu. Bragðaðist bara vel. Föstudagar eru annasamastir hér í Hálsaskógi, alla vega hjá okkur Vikugellum, og því gott að meira skuli lagt í hádegismatinn en á t.d. þriðjudögum. Suma föstudaga kaupa stelpurnar nammi eftir hádegi og þá gaman að lifa. Nú er aðalnammigrísinn í helgarferð í Svíþjóð svo líklega verður ekkert nammi í dag nema ég grípi til aðgerða. Vona bara að nammigrísinn muni eftir að koma með nammi handa okkur úr Fríhöfninni. Það er regla hér.
Eftir matinn voru heilmiklar umræður, m.a. um lífsreynslusögur Vikunnar. Ég sagði full eftirsjár frá kunningjakonu sem nýverið bannaði mér að birta djúsí frásögn af manni sem sagði konu sinni upp með tölvupósti eftir langt hjónaband. Lét sig bara hverfa. Kunningjakona mín sagði að þetta hlyti að vera svo sjaldgæft að það myndi fattast og dró leyfi sitt fyrir birtingunni til baka. Samstarfsmenn mínir hlógu kvikindislega og sögðust vita fjöldamörg dæmi þess að uppsagnir færu einmitt þannig fram og sögðu mér enn meira krassandi sögur.
Einn gæinn dömpaði kærustunni sinni með SMS-i: „Thetta er buid“ Annar sagði við konu sína þegar hann var nýkominn heim úr vinnunni: „Ég elska þig ekki lengur.“ Þegjandi og hljóðalaust setti hann svo fínu buxurnar, sem hann hafði nýlega keypt á 17.000 kall, ofan í poka og greip líka eina koníaksflösku úr vínskápnum með. Fleiri orð voru ekki höfð um þetta.
Kannski er ég á lausu vegna hræðslu við eitthvað svona skelfilegt dömp. Ég kannski búin að vera með manninum í viku, búin að kaupa brúðarkjól, koma mér upp smekk fyrir fótbolta og Formúlu, velja á milli hans og kattanna/erfðaprins og velja hann ... og svo kemur önnur kona í spilið og býr á heppilegri stað en á næstum 5. hæð á Akranesi (erfitt að flytja flygilinn alla leið upp).
Ylfa Ósk Úlfarsdóttir, af ætt úlfhunda, kom í heimsókn í vinnuna í dag og Úlli kokkur, eigandi hennar, er ekki lengur viss um að hún sé hvolpafull. Sónar um daginn sýndi nákvæmlega ekkert en það þarf samt ekki endilega að tákna óléttuleysi. Ég sem er búin að vera að lauma að henni harðfiski þegar hún kemur, af því að ég hélt að hún þyrfti að borða fyrir níu ... og það stolnum harðfiski úr skúffunni hennar Hrundar.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
