Það var greinilega hárrétt ákvörðun
hjá Skagayfirvöldum að hafa frítt í strætó því mikill fjöldi fólks
notfærir sér þjónustuna. Bílstjórinn sagði mér áðan að oftast væri
vagninn þéttsetinn og oft alveg stútfullur. Í svona veðri skil ég að
krakkar nenni ekki að rennblotna á leiðinni í skólann eða kerlingar á
leið úr sjúkraþjálfun vilji halda sér þurrum og þá er strætó frábær
kostur. Það hlýtur að vera mun minna um skutl foreldra og erfðaprinsa á
þessum háabensínverðstímum og þá er tilganginum náð.
Nick er á bömmer yfir Forrester-fyrirtækinu,
hlutirnir ganga ekki eins vel og hann bjóst við, sigurinn ekki
jafnsætur. Jackie, mamma hans, reynir að stappa stálinu í strákinn. Ég
sá ekki betur en Thorne og Taylor sofi nú saman og hann búinn að gefa
henni hring. Taylor er líklega svolítið siðlaus geðlæknir, hún lofaði
Thorne sínum að hún stefndi að því að endurheimta fyrirtækið fyrir
fjölskylduna, hún hefði boðið Nick í geðlæknismeðferð ... Það er eins
og mig minni að kristalskúlan mín hafi sagt að það leiði til
ástarsambands þeirra.
Phoebe, dóttir Taylor og Ridge,
er svolítið skotin í garðyrkjumanninum grunsamlega sem bar ekki vitni í
máli Taylor sem var, eins og allir muna, fyrir rétti fyrir að hafa ekið
full og réttindalaus á Dörlu, konu Thorne, og valdið dauða hennar.
Garðyrkjumaðurinn er á flótta undan lögreglunni, var barinn á
ströndinni og býr nú í skjóli dr. Bridgetar að beiðni Phoebe. Ridge
hefur sagt dóttur sinni að líta ekki við svona lúser en Phoebe
vorkennir honum, hver sér ekki rómantík í subbulegum flækingi sem
mögulegt væri að bjarga?
Um daginn tilkynnti Stefanía að
hún ætlaði aldrei framar að tala við móður sína. Það misheppnaðist
algjörlega tilraunin til að hugga barða barnið í henni með að fá
mömmuna til að biðja afsökunar á því að hafa ekki varið hana fyrir
pabbanum með fúsa hnefann. Systir Steffíar tók upp hanskann fyrir hana
í uppgjörinu og sagðist muna eftir hræðilegum atvikum.
Jamm, alltaf stuð í boldinu.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
