ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Hollusta og hressleiki í himnaríki

15:23 › 21. september 2008

Hollustudótið Fyrir u.þ.b. hálfum mánuði hóf
ég nýtt líf, eða þannig, og byrja hvern morgun (nema þann þegar ég svaf
yfir mig í rafmagnsleysinu) á því að fá mér hollustumorgunverð. Var
bent á nokkuð sem heitir Beyond Greens og fæst í
Heilsuhúsinu. Ég set matskeið af þessu í eplasafa og drekk með bestu
lyst. Skelli reyndar fyrst í mig skeið af lýsi, eða Udo´s 3-6-9
olíublöndu og kyngi henni með hjálp fyrsta sopans af Beyond
Greens-dæminu. Þetta, ásamt vítamíninu sem á m.a. að efla kynhvötina
(grrrr), hefur sannarlega haft góð áhrif á ekki lengri tíma. Nú vakna
ég ekki á morgnana, heldur glaðvakna og er svo miklu hressari.
Bjúgurinn, sem hefur angrað mig síðan ég var rúmlega þrítug og fékk
óverdós af fúkkalyfjum, er að hverfa en mér hefur verið meinilla við að
taka bjúgtöflur síðan ég las á fylgiseðlinum að þær gætu verið slæmar
fyrir hjartað. Man eftir lækni sem starði vantrúaður á mig stokkbólgna
af bjúg og sagði mér að niðurstöður viðamikillar blóðprufu hefðu sýnt
að ég væri við frábæra heilsu.

Kubbur bókaormur Ég hef reynt að finna mér eitthvað hollt og gott
í morgunmat í gegnum tíðina en ekki verið alveg sátt við neitt til
þessa. Nú held ég að ég hafi loksins dottið ofan á eitthvað sem mér
finnst gott og hefur líka góð áhrif. Í þessu eru m.a. fitusýrur,
trefjar, næringarefni og meltingarensím. Auðvitað væri best að fá þetta
allt úr úr fæðunni en ég þekki sjálfa mig, viðurkenni að ég hef allt of
oft látið grænmeti og ávexti skemmast í ísskápnum. Gæti reyndar trúað
að þessi morgunmatur sé helmingi dýrari en sá sem ég get fengið í
mötuneytinu á 88 krónur (grænmeti/álegg án brauðs) en þessi gerir mér
svo miklu betra. Ég finn líka fyrir minni sykurlöngun sem er bara
frábært. Finnst ég hafa grennst, alla vega misst bjúg ... en þar sem ég
lít á baðvigtir sem uppfinningu andskotans þá get ég ekki vitað með
vissu hversu mikið.

Þetta er kannski leið letingjans
að betri líðan en hver veit nema þetta verði til þess að ég fari
stútfull af orku að elda sannkallaðar hollustumáltíðir á hverju kvöldi,
ekki bara stundum.

Ég prófaði einu
sinni Herbalife og fylltist gríðarlegri orku, eftir tvær vikur var ég
farin að strauja þvottapoka og það straujar enginn þvottapoka ... en
svo voru pillurnar sem fylgdu með bannaðar, þær virkuðu víst eins og
argasta amfetamín. Ég á reyndar einn dunk af Herbalife núna og mun
ábyggilega fá mér stundum úr honum til tilbreytingar.

Það
allra besta væri auðvitað að eiga mann sem væri karlkynsútgáfa af Sollu
í Grænum kosti ... en þangað til ég finn hann þá held ég mig við þetta.
Hef meira að segja séð vítamínið til sölu í Einarsbúð.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?