Ella og Kjartan kíktu óvænt í latte
í dag, ásamt dætrum. Við ætluðum að kíkja til Línu en hún hafði brugðið
sér til höfuðborgarinnar þannig að það var bara kaffi í himnaríki í
staðinn. Ég þarf að koma mér upp einhverju í ísskápinn til að eiga
alltaf fyrir börn, áttaði mig á því að ég átti ekkert til að bjóða
stelpunum, börn heimsækja mig greinilega allt of sjaldan. Við áttum hið
skemmtilegasta spjall. Ég sagði
þeim
m.a. frá samskiptum okkar Indverjans í strætó í gær, glottið á mér
þegar hann sagðist heita Grís og glottið á honum þegar hann heyrði nafn
mitt. Kjartan var viss um að framburður hans á kryddinu „karrí“ væri
líkur nafninu Gurrí sem er líklegra en það sem ég giskaði á. Sjálfur
sagði hann farir sínar ekki sléttar þegar hann var í Bandaríkjunum einu
sinni og var stundum kallaður Curtain (gardína) þar. Við Ella eigum
sama afmælisdag, það hlaut að vera, svona dásamleg manneskja ... og
annað, hún bjó í himnaríki fyrir rúmum áratug og var fannst gaman að
sjá gamla heimilið sitt aftur. Saknar enn útsýnisins.
Þau Kjartan verða væntanlega heimsfræg
á næstunni, voru plötuð í viðtal sem ein stuðningsfjölskylda Línu í
þáttinn sem BBC er að gera um nýju Skagamennina. Margt ævintýralegt
hefur víst gerst við upptökur, sjónvarpsmyndavélar hafa m.a. fokið út í
buskann, og annað slíkt, enda rokið engin hemja þessa dagana. Svo er
líka statt hérna upptökufólk frá arabískri sjónvarpsstöð. Það er víst
aðferðin við móttöku flóttafólksins sem vekur athygli en hún þykir
öðruvísi en í öðrum löndum og beinist að því að fólkið aðlagist hratt
og vel. Dáist sífellt meira að Rauða krossinum og þeim sem hafa komið
að skipulaginu og vinnunni við þetta verkefni. Margt bráðfyndið gerist
vissulega af og til og ég held að ég særi engan þótt ég endurtaki
setningu sem heyrðist í ónefndri verslun í dag: „Æ, hvernig kem ég
henni í skilning um að maður kaupi ekki pollagalla á 17 ára strák!“




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
