Móðir mín brá sér til Noregs í sumar
með gamalli vinkonu sem á þar son, tengdadóttur og barnabörn. Hún
hreifst mjög af landi og þjóð og ferðin var einstaklega skemmtileg.
Mamma gerði sér þó lítið fyrir einn daginn, skömmu fyrir heimför, og
datt og slasaði sig. Norska heilbrigðiskerfið sagði hana óbrotna en með
brest í axlarkúlunni. Þjónustan var dýr en verkjalyfin ótrúlega ódýr,
enda samheitalyf ... sem virkuðu lítið sem ekkert.
Við heimkomu var mamma enn að farast úr verkjum
og dreif sig í Orkuhúsið, einkarekna læknastofu þar sem viðmótið var
víst rúmlega frábært og í ljós kom að hún var rifbeinsbrotin,
upphandsleggbein var þverbrotið og tvö brot voru í hringnum í
mjaðmagrindinni vinstra megin þar sem hafði líka blætt inn á vöðva. Hún
var samstundis tekin af samheitalyfjunum, sett á verkjalyf sem virkuðu
og líðanin varð betri í hvelli. Hún er byrjuð í sjúkraþjálfun og kemst
þangað með leigubíl á strætóverði en beinbrotnum eldri borgurum stendur
það til boða ... ef þeir eru svo heppnir að frétta af þeim möguleika.
Nú skil ég betur hvers vegna sumir
tala um að íslenska heilbrigðiskerfið sé „best í heimi“. Ég hef horft í
„ranga“ átt, á t.d. sjúklingana sem eru neyddir til að sprauta sig
sjálfir (eða finna einhvern sem hefur lært að sprauta) með
blóðþynningarlyfi daginn fyrir aðgerð (a.m.k. á Kvennadeildinni) og
síðan fleygt heim í sparnaðarskyni á meðan þeir eru enn fárveikir og
hafa jafnvel engan til að hjálpa sér. Og fleira og fleira. Hugsa sér ef
það yrði nú lagað ...
Boldið er ótrúlega dramatískt núna.
Shane, garðyrkjumaðurinn grunsamlegi, er horfinn úr lífi
Forrester-fjölskyldunnar eftir að hafa verið barinn með “beisboll”kylfu
af Hectori fyrir að reyna við Phoebe og bar því ekki vitni í
réttarhöldunum gegn Taylor, geðlækninum geðþekka sem hefur þegar
sálgreint einn fangavörðinn og veitt geðlæknislega aðstoð. Óvænt kallar
verjandinn Storm (bróðir Brooke) ekkilinn sorgmædda, Thorne, í
vitnastúkuna. Thorne vinnur þarna mikinn leiksigur og ef kviðdómendur
hafa hjartað á réttum stað verður Taylor sýknuð og fær þar að auki
fébætur fyrir álagið af því að hafa ekið á Dörlu, valdið dauða hennar
og setið síðan í gæsluvarðhaldi í appelsínugulum búningi sem klæðir
hana reyndar ágætlega.
Fór í Kringluna í gær
og keypti mér bleika myndavél. Ég leitaði um alla Kringlu að ódýrri
myndavél og fann ekki fyrr en í Hagkaup á annarri hæð. Fékk
Kringlu-gjafakort frá mömmu og gat því ekki farið í Elkó. Hagkaup
bjargaði málum og svo var þjónustan þar mjög góð. Stúlkan vildi þó
endilega selja mér aðeins dýrari vél en ég varð heilluð af þeirri
dökkbleiku, á mér sannast nefnilega það fornkveðna ... eða pretty in
pink.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
