Dásamlega gaman í strætó í morgun, öllum þremur vögnunum. Enginn sjór skvettist yfir átta-strætó í gær að sögn Skúla, bara fyrir framan vagninn eða aftan. Skúli er á einhverjum sérsamningi greinilega. Í leið 15 sat hinn frábæri Haraldur og keyrði okkur af miklu öryggi til Reykjavíkur. Ég og frábæri maðurinn við hlið mér dáðumst að bókaköflunum úr væntanlegum jólabókum Forlagsins sem voru fyrir framan hvert sæti, vandlega plasthúðaðir. Ég skelf af spenningi, hlakka ekkert smá til jólabókaflóðsins. Kannaðist ógurlega við þennan myndarmann sem sat hjá mér, samt er ég svo ómannglögg, og ... jamm, hann er í verkefninu okkar skemmtilega með Rauða krossinum. Býr í sveitinni og hefur boðið þeim sem vilja koma í heimsókn. Held að Lína og börn yrðu heldur betur ánægð að koma einhvern daginn þangað og sjá íslenska sveit.
Held að erfðaprinsinn verði ekki jafnlestrarsjúkur í jólabækurnar og í fyrra, nú gengur skólinn fyrir öllu hjá honum. Ég er með nokkrar nýjar DVD-myndir heima til að horfa á og skrifa um og hann hefur bara horft á eina, geymir þetta til helgarinnar. Það er mjög gott að láta hann horfa fyrir sig, hann ráðlagði mér t.d. eindregið að horfa á Walk Hard og 10.000 BC, myndir sem ég hafði síðan mjög gaman af og skrifaði um. Þessi einbeiting hans hefur skilað sér. Hann fékk einkunn úr stærðfræðiprófi í morgun ... veit að hann vonaðist eftir að fá 8 þar sem honum gekk ágætlega í prófinu. Mont, mont, hann fékk 9! Ruglaði saman plús og mínus í einu dæminu, ekki því þyngsta, annars hefði hann fengið 10. Jess. Sorrí mömmumontið, ég er líka svo ánægð með að hann hafi drifið sig í skóla aftur eftir langt hlé!Í leið 18 settist ég aftast og hjá ógurlega sætum Indverja í hvítri úlpu. Við brostum svo sætt hvort til annars að það braut ísinn sem vanalega ríkir milli strætófarþega (ís=feimni, fúlheit ...). Núna vitum við Indverjinn ALLT hvort um annað. Sagði honum m.a. að indverskur matur væri í sérlega miklu uppáhaldi hjá mér. Ég glotti aðeins hann sagðist heita Gris (rétt: Girish) og hann glotti þegar ég sagðist heita Gurrí (þýðir ábyggilega datt á rassinn á hindí). Indverjahópurinn vinnur við forritun hjá Glitni, eins og glöggur lesandi bloggsins hafði bent á fyrir löngu, og ungi maðurinn sagði mér að hann kynni mjög vel við sig á Íslandi, sumarið hefði verið einstaklega gott og hann sæi ekkert athugavert við haustveðrið, ég spurði hann auðvitað.Langar að vekja athygli á ótrúlegu máli sem hægt er að lesa um á blogginu sem ég hlekkja við, ég er í losti yfir þessu, vona heitt að þetta verði lagað. Endilega kíkið á síðuna hennar Svövu: http://slartibartfast.blog.is/blog/slartibartfast/entry/644702/
Blogg
Hvar eru sætu mennirnir? Svar: Í strætó!
10:49 › 19. september 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
