ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Sjóskvettur, geislandi fegurð og útrás dagsins ... djörf færsla

08:47 › 18. september 2008

KornflögufjölskyldaÞeir sem þekkja mig vita að ég er mikil b-manneskja, næturgöltur sem finnst gott að sofa út á morgnana. Í morgun vaknaði ég klukkan 6 eftir tæplega 6 tíma svefn og var eins og fólkið í ammrísku kornflöguauglýsingunum (sjá mynd). Dansaði um eldhúsið á meðan ég gerði latte fyrir okkur Ástu ... og hrærði mér galdradrykkinn góða úr Heilsuhúsinu sem mig grunar að hafi þessi ógurlega hressandi áhrif og hafi mögulega valdið því að prófarkalesari sem vinnur með mér hrósaði mér í gær fyrir fagurt útlit (Hefurðu grennst? Þú geislar alveg ... o.s.frv.). Sú kona er hamingjusamlega gift karlkynsmanni (meira að segja lækni) og var því ekki að daðra við mig. Ég man ekkert hvað þetta dótarí heitir en ætla að taka mynd af því og skella á bloggið, ekki hægt að þegja yfir svona kraftaverki, eða hressleikanum á morgnana. Ég er ekki dómbær á útlit mitt sjálf, tek alltaf andköf af aðdáun þegar ég lít í spegil. Undanfarna tíu daga hef ég m.a. tekið inn olíu (Udo' s?) og fernt í viðbót. Eitt bætiefnið er við kyndeyfð sá ég á bæklingi sem fylgdi. Ég spurði konuna í Heilsuhúsinu, þá sem mælti með þessu, hvort ég virkaði svona kynköld, var mjög móðguð. Hún flissaði og sagði að þetta væri bara hressandi vítamín en hefði kynörvandi áhrif líka. Ég róaðist ... en ekki þannig, nú flökrar nefnilega að mér að stökkva á mennina í vinnunni og kela við þá, eitthvað sem mér hefði aldrei dottið í hug fyrir tíu dögum eða svo ...Kjalarnesi í morgunLítil sem engin umferð var á leiðinni í bæinn, klukkan var ekki orðin 6.30 þegar við lögðum af stað og okkur gekk ógurlega vel að komast áfram, utan þær mínútur sem við vorum fyrir aftan rauða Toyota-jeppann sem ók á 60 á þjóðveginum skömmu eftir Kollafjörð. Rólegur karl með derhúfu sat undir stýri. Honum lá greinilega ekkert á þannig að hann reyndi ekki einu sinni að gefa okkur séns, heldur gerði sig of breiðan fyrir framúrakstur. Held að hann hafi ekki verið almennilega vaknaður, karlanginn. Ásta glotti bara (ekki beiskjulega) og fór fram úr þegar akreinar urðu tvær.Fyrstu brimskvettuna fengum við yfir okkur við Leyni ... eða öllu heldur sætukarlastoppistöðina, þá síðustu á leið út úr Skaganum. Ég gargaði af gleði þegar sjórinn gekk yfir bílinn og Ásta horfði á mig með samúð. Held að Hilda systir sé sú eina sem skilur mig fullkomnlega í þessu.Í KollafirðinumÞað var í raun skelfilegt að þurfa að fara í vinnuna í Reykjavík í dag og geta ekki horft á brimið fram eftir morgni. Þetta var þó ekki allt búið, þegar við vorum komnar fram hjá Grundahverfinu á Kjalarnesi sáum við að það skvettist sjór yfir veginn, sjaldgæft, hafið er yfirleitt frekar rólegt þarna. Við fengum náttúrlega skvettu á okkur þegar við keyrðum þarna. Í Kollafirðinum var líka stuð í sjónum og komu nokkrar dásamlegar skvettur yfir okkur þar. Held að háflæði hafi verið um áttaleytið. Það hefur því verið einstaklega gaman að fara með áttaferð strætó (7.41 frá Akranesi) í morgun. Vonandi að farþegarnir kunni að meta brim, eða Skúli bílstjóri. Tek strætó í fyrramálið og get spurt hann út úr.Gissur Sigurðsson sagði sjöfréttir á Bylgjunni þegar við vorum að skríða inn í borgina og mikið rosalega hef ég alltaf gaman að fréttunum þegar hann segir þær. Þær verða svo spennandi í meðförum hans, maður sperrir eyrun og hlustar á hvert einasta orð. Bylgjan er þó aðeins of æst fyrir mig á morgnana (gætu verið trylltir stuð- treilerarnir) þannig að ég setti á Rás 2 við komu í vinnuna og því rennur ekki rafgeymasýra um æðar mínar af pirringi sem verður til við of mikinn æsing í útvarpi. Stundum set ég meira að segja á Rás 1 á morgnana, það er nú unun, myndi þó hlusta á X-ið ef Tvíhöfði væri þar ... elska góðan húmor og góða tónlist á morgnana, gaman þegar þeir hringdu stundum í Hvíta húsið (456 1414) og gerðu at í Bush. Stundum er þó ekkert útvarp það allra besta.PlokkfiskurÓska ykkur gleðilegs vinnudags og farsæls komandi hádegisverðar. Hér í Hálsaskógi verður plokkfiskur í aðalrétt og hann get ég ekki borðað því að í gumsið er yfirleitt notaður illa lyktandi saltfiskur, BÐÖ. "Grænmetis"rétturinn verður: Ítalskur pastaréttur frá Napólí. Bara fyndið, vildi að það yrði frekar grænmetisréttur ... sniðugt og sparandi að kalla allan  kjötlausan mat grænmetisrétt ... Jamm, svo nenni ég ekki að nöldra, það er farið í svo mikla vörn og öll tilfinningarök notuð. Mér var tilkynnt nýlega að morgunmaturinn minn hefði hækkað um 100%, úr 40 krónum í 80 krónur af því að það þyrfi að borga laun, rafmagn, senda barnið í ballett og svona ... Af hverju ætli sé sagt að konur noti svona rök en aldrei hið rökfasta karlkyn? Ja, ég átti engin mótrök við þessu, bara hætti að kaupa morgunmat (innihald: matskeið af kotasælu, tvær agúrkusneiðar, tveir paprikubútar, þrjár sneiðar af harðsoðnu eggi, pínulítið af rauðlauk, ekkert brauð). Varð að kaupa í gær vegna yfirsofelsis og þá var verðið komið upp í 88 krónur. Þetta er ekkert dýrt svo sem, bara prinsip að láta ekki fara illa með sig. Mér var nefnilega boðið að fá mér helmingi meira í morgunmat og borga helmingi meira fyrir það ... ekki ásættanlegt. Supersize me-hvað! sagði Guðríður beisklega en með yndisþokka. Fagurt en greindarlegt augnaráð hennar bar vott um andlegan sársauka sem tengdist greinilega stundum-nöturlegri reynslu hennar af mötuneyti Hálsaskógar. Jamm, útrás dagsins var í boði frú Guðríðar himnaríkishunangs.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?