ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Aðgerð KRÍA og tímamótakvikmynd úr bloggheimum

17:22 › 18. september 2008



Afar myndarlegur maður á Stöðvar 2-útsendingarbíl (Sýn) stoppaði hjá mér
seinnipartinn þar sem ég beið eftir Ástu fyrir neðan Hálsaskóg og spurði hvort ég
væri að fara á Skagann. Hann bauð mér far en ég gat ekki hugsað mér að svíkja Ástu
sem sat föst á Miklubrautinni, beið eftir að komast fram úr biluðum
strætisvagni og var á leiðinni að sækja mig. Maðurinn var á leiðinni á leikinn ÍA-KR
... eða „KRÍA“ sem er leyniorð okkar
Skagamanna yfir aðgerðina „Rústum Landsbankadeildinni á síðustu stundu“.

Lára Hanna er alltaf með bíómyndir á bloggsíðunni sinni, ég vil ekki vera
eftirbátur hennar og er með eina glænýja og æsispennandi hér að neðan. Ég lét
nefnilega taka upp bloggvinafund sem haldinn var nýlega og með falinni myndavél
að sjálfsögðu. Vona að mér takist að setja þetta tímamótaverk inn og að þið fáið notið þess.

 

 
Try JibJab Sendables® eCards today!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?