Ég átti í afar ljúfum tölvusamskiptum við mann hjá Ríkisútvarpi/Sjónvarpi áðan. Tek það fram að ég kannast við hann síðan við bjuggum í sama húsi um tveggja ára skeið og unglingurinn hans, hún Rún, setti hann í pössun til mín þegar hún fékk að halda partí. Pabbinn harðneitaði að fara fjær húsinu en í næstu íbúð, gott hjá honum. Heheheheh. Í fyrra bréfinu stóð m.a.: Gerðu svo vel, Guríður skagaprýði. Ég þakkaði honum í svari mínu, hrósaði fyrir að kunna að umgangast heldri konur og fékk þetta til baka: Ekkert að þakka, Akrafjallsyndi. Ekki slæmt að vera álitin yndi Akrafjalls eða prýði Skagans. Já, sumir menn kunna sig heldur betur og mér finnst þetta satt að segja vera til eftirbreytni.Fínasti matur var í hádeginu, grænmetisbuff með sterkri hunangssósu og/eða kjúklingabitar með kínverskri sósu og svo fullt af grænmeti. Auðvitað, bara lögmál að hafa báða réttina góða á sama deginum ... og svo aðra daga kannski er pasta með kjöti og pasta með grænmeti.
Blogg
Skagaprýðin og Akrafjallsyndið ...
14:03 › 17. september 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
