Hrökk upp með andfælum við hringingu í gemsanum í morgun kl. 6.30. „Ertu ekki að koma?“ nöldraði Ásta á hinum enda línunnar og skildi ekki af hverju enginn kom trítlandi með latte í báðum eins og vanalega. Í ljós kom að rafmagnslaust var í himnaríki, hvorki rafmagnsklukkan né síminn (sem ég ætlaði að láta hringja til öryggis) létu nokkuð í sér heyra kl. 6 eins og þau höfðu verið beðin um. Mikið var ég þakklát Ástu fyrir að nenna að bíða eftir mér, sem var ekki lengi, því sem betur fer var ég búin að klæða mig, tannbursta og mála, gerði það nefnilega í gærkvöldi og hárlakkaði svo yfir dýrðina til að hún héldist ... þannig að ég gat bara hoppað beint niður stigana og inn í bíl. Hafði ætlað að skipta út rennblautum handklæðum í gluggunum í morgunsárið en það lenti bara á erfðaprinsinum. Hann fer í skyndipróf í stærðfræði á eftir og vonandi gengur honum jafnvel og síðast en þá lenti hann ágætlega yfir meðaltali sem er vel af sér vikið miðað við að hann hefur ekki verið í skóla í rúman áratug. Verst að hann er ekki orðinn rafvirki, það slær alltaf út aftur, sagði hann mér áðan ... vatn hefur komist í eitthvað. Arggg. Sé fyrir mér tölvu-, kaffi- og sjónvarpsleysi seinnipartinn og í kvöld nema eitthvað verði að gert. Það er slæmt, ætlaði að klára eina grein heima og stærstur hluti hennar er fastur í tölvunni minni! En hva ... ný Vika var að koma í hús og fer í búðir í dag og á morgun. Langar að benda á að Viku-krossgátan er skítlétt (segir mamma) og alltaf góðar bækur í verðlaun. Nú til dæmis er það frábæra bókin Glerkastalinn eftir Jeannette Walls. Megi dagurinn ykkar verða friðsæll en skemmtilegur, fengsæll og frábær! Mæli svo um og legg á!
Blogg
Rafmagnslaust í himnaríki og hjartahlýja&biðlund Ástu
08:25 › 17. september 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
