ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.6° 5m/s NNW
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Ansi hraðskreið rigning ...

18:15 › 16. september 2008



Hraðskreið rigning 16. sept 08Hér á Skaganum fer rigningin ansi hratt yfir með tilheyrandi votum gluggum í
himnaríki. Sjórinn er sjúklega flottur en flóð verður um sjöleytið í kvöld. Hér
þarf mikinn undirbúning fyrir nóttina en þá á veðrið víst að versna einhver
ósköp. Handklæði í glugga, eldhúsrúllubréf í opnanlegu fötin og dagblöð á
gólfin. Svo er bara að vita hvort Ásta eða strætó þori að leggja í Kjalarnesið
í fyrramálið.

Skrapp í örstutta heimsókn til Línu í dag og var voða gaman að hitta þau. Hef
ekkert séð þau síðan á föstudaginn. Strákunum tókst að segja mér að þeir hefðu
farið í sund og hvað það hefði verið gaman. Gaman að sjá hvað dóttur Kjartans
og Ellu og krökkunum hennar Línu kemur vel saman en þau komu í heimsókn þegar
ég var að fara.

Annað: Inga, það var sannarlega ekki ætlunin að upphefja „góðmennsku“ mína eða annarra
Skagamanna á blogginu mínu eða segja frá einkamálum flóttamannanna. Ég hef
hingað til bloggað um flesta þá hluti sem gerast í lífi mínu og síðasta vika
var svo frábær og skemmtileg að erfitt var að sleppa því að blogga um það. Mér
finnst ekki alvarlegt að skrifa um kaffiuppáhellingar eða þvottavélastúss,
vissulega gerist sitt af hverju annað sem á ekkert erindi á bloggsíðu og ég
skrifa ekkert um það. Mögulega hef ég vonað að þeir sem eru á móti komu
flóttakvennanna og lesa þetta sjái að þetta er bara venjulegt og gott fólk sem
getur fótað sig hér á landi. Millivegurinn er þó alltaf erfiður og ef ég hef
farið yfir einhverja línu var það sannarlega ekki ætlunin.

Ég sá bara pínulítið af boldinu og sýndist Stefanía og Eric komin heim
til mömmu Stefaníu. Þegar mamman var að tala fallega um mann sinn heitinn
heyrði ég að það kom spennutónlist undir. Sé þetta betur á morgun en hvert
andartak í þáttunum er teygt út í hið óendanlega, þess vegna skiptir varla máli
þótt einn þáttur detti út. Jú, Taylor sagði Thorne að hann ætti ömmu á lífi og
það kom undrunarsvipur á hann.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?