Var klukkuð og ákvað að afplána það þótt margt skrýtið hafi uppgötvast, t.d.
það að ég hef aldrei farið sérstaklega í sumarfrí til útlanda, alltaf átt
erindi ... kórferðalag, árshátíð (í hittiðfyrra til London), vetrarheimsókn til
Elfu vinkonu og slíkt.
Eitt sumarfríið skrapp ég til Önnu og Ara á Álftanesið-gáfaða
og varði með þeim skemmtilegri kvöldstund. Var síðan skutlað heim í Vesturbæinn í
stórum jeppa þar sem svokallað “lóran”-tæki (minnir mig að það heiti) sýndi nákvæmlega
leiðina vestur í bæ. Það stóð upp sem skemmtilegasta ferðalag þess sumars ef ég
tel strætóferðirnar ekki með, hehhehe. Annars, meðan það mátti, seldi ég
iðulega sumarfríið mitt. Mikill misskilningur að
einstæðar mæður hafi það svo gott. Venjulegur mánuður: Konulaun + 10 þús. í meðlag
+ 5 þús. í mæðralaun. Það voru pörin sem þóttust vera „einstæðar“ sem
gátu mögulega lifað mannsæmandi lífi og þar lá misskilningurinn. Jamm! Þetta átti nú ekki að fara út í
eitthvað svona, lenti bara oft í rifrildi yfir því hvað við, þessar einstæðu,
hefðum það nú gott á öllum þessum bótum. Hlátur minn yfir því í dag er enn pínulítið beiskjublandinn.
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
- Bakka- og vélastúlka
í Ísfélagi Vestmannaeyja (hækkaði í tign úr orma- og beinatínslunni)
- Skartgripasölukona
á Laugaveginum
- Skrifstofustúlka
í ýmsum fyrirtækjum
- Útvarpskona (lengst
af á Aðalstöðinni)
Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:
- Empire of the
Sun
- Sound of Music
- True Lies
- Allt um móður mína
(svona sem ég man eftir ...)
Fjórar bækur sem ég hef lesið oftar en einu sinni:
- Allar bækur
Enid Blyton
- Vinur minn, prófessorinn (rómantísk spítalasaga)
- Snjallar
stúlkur (útg. 1946, í eigu mömmu, spennubók fyrir krakka)
- Málsvari
myrkrahöfðingjans (ja, þótti hún mjög skemmtileg á unglingsárunum)
(marglas bækurnar
í gamla daga, geri það ekki lengur, nema Harry Potter)
Fjórir sjónvarpsþættir:
- House
- 24
- Illt blóð
- Útsvar/Silfur
Egils/Kiljan/Simpsons ... get illa gert upp á milli, gleymi örugglega e-u
Fjórar fæðutegundir sem ég elska:
- Kjúklingur
- Nautakjöt
- Indverskur
matur
- Mexíkóskur
matur
Fjórir staðir sem ég hef farið á í sumarfrí:
- Álftanes
- Höfn í
Hornafirði (sumarbústaður yfir helgi með mömmu og systkinum)
- La Conner
(Washington-fylki USA, 2 vikur í jan. 2002)
- Austurríki, Þýskaland,
Ítalía; kórferðalag í júní 1985
Fjórir staðir sem ég hef búið:
- Akranes (þrisvar:
2-12 ára, sem ung, nýgift, nú sem pipruð kattakerling í himnaríki)
- Reykjavík (0-2 mánaða,
13-18 ára, 24-48 ára)
- Sauðárkrókur (16-17
ára)
- Stykkishólmur (til
2 ára) (og Vestmannaeyjar hálft ár 1974)
Ég klukka ... Hnakkus, Björn Bjarnason, DoktorE og Egil
Helgason.




















Ótti er sterk tilfinning, lamandi og óþægileg. Flestir sem finna fyrir ótta reyna að losna við tilfinninguna sem fyrst. Ótti hefur, eins og aðrar tilfinningar, áhrif á viðbrögð okkar, hegðun ... 
